Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur, þar sem sú ákvörðun Seðlabanka Íslands að sekta útgerðarfyrirtækið Samherja, upp á 15 milljónir króna, var dæmd ógild.
Í tilefni af þessum dómi skrifa Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri og Kristján Vilhelmsson útgerðarstjóri, sem jafnframt eru stærstu eigendur fyrirtækisins, bréf til starfsmanna, sem birt hefur verið á vef fyrirtækisins. Þar þakka þeir starfsmönnum fyrir tryggðina og samheldnina.
„Með dómi Hæstaréttar Íslands í dag lauk máli Seðlabanka Íslands á hendur Samherja. Með þessum dómi lýkur endanlega tæplega sjö ára aðför Seðlabankans á hendur Samherja. Öllum fullyrðingum og ásökunum Seðlabankans á hendur Samherja og starfsfólki okkar hefur verið hnekkt og bankinn beðið afhroð.
Okkur er efst í huga þakklæti til ykkar kæru starfsmenn. Þið sem hafið staðið þétt við bakið á okkur í gegn um árin. Það er þungbært að sitja undir ásökunum jafn valdamikillar stofnunar og Seðlabanka Íslands. Með slíkum þunga getur verið auðvelt að brjóta niður samstöðu fólks. Takk kæru starfsmenn fyrir stuðninginn og alla vinnuna sem þið hafið lagt á ykkur. Við viljum líka þakka fyrir að þið misstuð aldrei trúna á okkur og að við höfum lagt okkur fram um að vinna störf okkar í samræmi við lög og reglur. Við unnum ásamt ykkur heiðarlega og samviskusamlega að rekstri okkar fyrirtækis á tímum sem eiga sér ekki hliðstæðu á Íslandi. Samstaða ykkar hjálpar okkur að halda áfram þegar að okkur er sótt. Takk fyrir.“
Málið hófst með húsleit í höfuðstöðvum Samherja 27. mars 2012, en um 25 starfsmenn gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Íslands og embættis sérstaks saksóknara tóku þátt í aðgerðunum.
Dómarar í málinu voru Þorgeir Örlygsson, Greta Baldursdóttir, Markús Sigurbjörnsson, Ólafur Börkur Þorvaldsson og Viðar Már Matthíasson.
Lögmaður Seðlabanka Íslands var Steinar Þór Guðgeirsson og fyrir Samherja Garðar G. Gíslason.
Seðlabanki Íslands var dæmdur til að greiða Samherja 1,2 milljónir í málskostnað.