Samband ungra sjálfstæðismanna (SUS) lýsir yfir vonbrigðum með þau orð sem formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, lét falla á nýafstöðnu kirkjuþingi þjóðkirkjunnar í ályktun frá stjórn SUS.
Í ávarpi sínu sagði Bjarna að krafa um aðskilnað ríkis og kirkju, eða ríkis og trúarbragða almennt, sé komin frá ungu fólki sem hafi ekki lent í áföllum á lífsleiðinni og þekki því ekki til sáluhjálpar þjóðkirkjunnar.
Í ályktun SUS er Bjarni harðlega gagnrýndur fyrir orð sín: „Orðræða af þessu tagi lýsir gríðarlegum vanskilningi á málstað þeirra fjölmörgu Íslendinga sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju, en um er að ræða baráttumál SUS til margra áratuga og samþykkta stefnu Sjálfstæðisflokksins á landsfundi. Það er afar ómálefnalegt að afskrifa málstað þeirra sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju með þeim hætti sem Bjarni gerði.“ segir stjórn SUS
Í engu sambandi við reynslu fólks af áföllum í lífinu
Samkvæmt ályktuninni byggir málstaður þeirra sem styðja aðskilnað ríkis og kirkju í langflestum tilvikum á því að það sé ekki hlutverk ríkisins að skattleggja almenning til að fjármagna trúfélög, hvað þá eitt trúfélag framar öðrum. „Slíkt fyrirkomulag felur í sér mikið ójafnræði milli trúfélaga og er á skjön við lífsskoðanir fjölmargra Íslendinga, en sá hópur fer stækkandi með hverjum deginum og samanstendur af þjóðfélagshópum af öllum aldri og pólitískum skoðunum, og stendur í engu sambandi við reynslu fólks af áföllum í lífinu“ segir í ályktuninni.
Í ályktuninni leggur SUS áherslu á mikilvægi þess að Sjálfstæðisflokkurinn beiti sér fyrir auknu frelsi og dragi úr inngripum ríkisins í líf fólks. Stjórn SUS telur það afar óeðlilegt að formaður Sjálfstæðisflokksins standi í vegi fyrir frelsismálum sem flokksmenn og gríðarstór hluti þjóðarinnar styður.