Batnandi staða þrátt fyrir „óþarflega heiftúðug“ átök um Hringbraut

Forstjóri Landspítalans fjallar um stöðuna á Landspítalanum í pistli á vef spítalans.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans. Mynd: RÚV.
Auglýsing

Páll Matth­í­as­son, for­stjóri  Land­spít­al­ans, segir að það horfi til betri vegar á spít­al­anum nú eftir tölu­vert mikla upp­bygg­ingu, jafnt á innra sem ytra starfi og umgjörð, á síð­ustu fimm árum. Eftir mikla and­stöðu við upp­bygg­ingu við Hring­braut, oft „óþarf­lega heift­úð­uga“, þá hafi tek­ist að blása lífi í hana.

Í pistli sem hann skrifar á vef spít­al­ans segir hann að mörg krefj­andi verk­efni hafi verið unnin á und­an­förnum árum. „Það er hollt að fara yfir þær áskor­anir sem blöstu við okkur haustið 2013 þegar ég tók við sem for­stjóri. Þar stóðum við ef svo má segja í rústum hruns­ins. Spít­al­inn var kom­inn að fótum fram í kjöl­far fjársveltis og þeirrar ofurá­herslu á rekstur sem við vorum neydd í, að tal­verður marki á kostnað mannauðs­ins. Þetta var hálf­dap­urt haust; rekstr­arfé afar tak­mark­að, Hring­braut­ar­verk­efnið stöðugt bit­bein og aug­ljóst að framundan var nokkuð tor­sóttur veg­ur. Það var líka aug­ljóst að umtals­vert van­traust var til stjórn­enda spít­al­ans,“ ­segir Pál­l. 

Hann segir að mikil vinna sé nú framundan við að inn­leiða jafn­launa­vottun og von­andi ná þar fram mark­miðum að bæta kjör þeirra stétta sem þurfi á því að halda. „Við beinum nú sjónum sér­stak­lega að þörfum vakta­vinnu­fólks í hjúkr­un. t.d. með Heklu-verk­efn­inu, þar er á ferð­inni ný hugsun í vinnu­tíma og umbun og hefur verið vel tek­ið. Framundan er sömu­leiðis mikil vinna vegna jafn­launa­vott­unar sem allir þurfa að koma að. Hér sé ég tæki­færi til að bæta kjör þeirra stétta sem við árum saman höfum talað um að sitji hjá garði enda mun sam­ræmt starfs­mat færa á samn­inga­borðið efn­is­leg til­efni til þess. Ég bind sömu­leiðis vonir við inn­leið­ingu Sam­skipta­sátt­mál­ans. Þar er rakið tæki­færi til að gera vinnu­stað­inn okkar betri og spít­al­ann örugg­ari fyrir alla. Þessi sátt­máli varð ekki til af sjálfu sér, hann er afrakstur vinnu um 700 starfs­manna sem nú ásamt stjórn­endum og öðru starfs­fólki inn­leiða þetta mikil­væga verk­efn­i.“

Auglýsing

Páll segir að tek­ist hafi að blása lífi í upp­bygg­ing­una við Hring­braut, eftir mikla and­stöðu sem á köflum hafi verið óþarf­lega heift­úð­ug. „Sem betur fer tókst að virkja öfl­uga banda­menn innan og utan spít­al­ans, almenn­ing jafnt sem kröft­uga ein­stak­linga úr nær öllum stjórn­mála­flokk­um, sem skilja kall tím­ans í þessu mik­il­væga verk­efni. Upp­bygg­ingin við Hring­braut er komin á fullt skrið og við horfum til betri tíma í þessu til­liti, þó við gerum svo sann­ar­lega ráð fyrir að næstu ár verði anna­söm og á stundum tor­fær á fram­kvæmda­tím­an­um. Þegar ég horfi yfir þessi síð­ustu ár og skima til þeirra næstu verður það mér æ ljós­ara að eini fast­inn í spít­ala­rekstri er breyti­leik­inn. Þjón­usta við sjúk­linga tekur sífelldum breyt­ing­um, áskor­an­irnar eru enda­lausar og stöðug þróun á sér stað á öllum víg­stöðv­um. Árangur síð­ustu ára er sam­starfi okkar allra að þakka. Verk­efni næstu ára eru krefj­andi en af reynslu síð­ustu ára hef ég lært að okkur eru allir vegir fær­ir,“ segir Pál­l. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent