Ágúst Ólafur: „Þetta er nú alveg ótrúlegt“

Þingmaður Samfylkingarinnar gagnrýnir niðurskurð í fjárlagafrumvarpi milli umræðna í þinginu.

Ágúst Ólafur Ágústsson
Ágúst Ólafur Ágústsson
Auglýsing

Ágúst Ólafur Ágústs­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og full­trúi í fjár­laga­nefnd Alþing­is, gagn­rýnir aðhalds­að­gerðir sem birt­ast í fjár­laga­frum­varp­inu fyrir aðra umræðu á Alþingi, en í við­tali við RÚV í kvöld sagði Willum Þór Þórs­son, for­maður nefnd­ar­inn­ar, það væri verið að bregð­ast við kólnun í hag­kerf­inu með aðhalds­að­gerð­u­m. „Verð­bólgan er að láta á sér kræla og það er stór hluti frum­varps­ins sem er í launum og verð­bótum og það þarf að taka til­lit til þess sem hefur áhrif á fjöl­margar stærðir og svo þarf að gera almennar ráð­staf­anir til að mæta þeim útgjalda­auka og svo er einka­neyslan er að drag­ast saman á næsta ári og það er högg í virð­is­auka­skatts­tekj­ur,“ sagði Willum í sam­tali við RÚV í kvöld.

Ágúst Ólafur segir á Face­book síðu sinni, að í frum­varpi birt­ist aðhalds­að­gerðir sem hann lýsir sem „al­veg ótrú­leg­um“. 

Hann segir meðal ann­ars að öryrkjar eigi að fá 1,1 millj­arði minna en áður var gert ráð fyr­ir, sam­göngur fái 500 millj­óna nið­ur­skurð, og hvergi sé borg­ar­lína sjá­an­leg, og þá sé einnig gert ráð fyrir mun minna fjár­magni í marga aðra liði, en fyrra frum­varp gerði ráð fyr­ir.

Auglýsing

„1. Öryrkjar fæ að meira að segja 1.100 mkr. lækkun frá því sem fjár­laga­frum­varpið gerði ráð fyrir í haust en það var ekki beysið til að byrja með. Verður það að telj­ast vera köld tuska í and­lit öryrkja að fá lækkun á milli umræðna á fjár­laga­frum­varp­inu. Enn er því afnám kr. á móti kr. ófjár­magn­að. Og nú eru skila­boðin að öryrkjar eigi að bera ábyrgð á kólnun hag­kerf­is­ins.

2. Hús­næð­is­stuðn­ingur fær 91 mkr. nið­ur­skurð hjá meiri­hlut­anum þrátt fyrir litla sem enga við­bót þegar frum­varpið var lagt fram og ákall verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um að hús­næð­is­málin séu eitt stærsta bar­áttu­mál þeirra.

3. Sam­göngur fá um 550 mkr. nið­ur­skurð frá því sem til stóð í fjár­laga­frum­varp­inu þegar það var lagt fram í haust og þrátt fyrir van­fjár­magn­aða sam­göngu­á­ætl­un. Engin Borg­ar­lína á dag­skrá hér.

4. Fram­halda­skóla­stigið fær til við­bótar 80 mkr. nið­ur­skurð þrátt fyrir að fá lækkun á milli ára þegar frum­varpið var lagt fram,“ segir Ágúst Ólafur meðal ann­ars á Face­book síðu sinn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent