Seðlabankinn: Munum meta verklag eftir Samherjamálið

Seðlabanki Íslands hefur sent frá sér tilkynningu vegna niðurstöðu Hæstaréttar í Samherjamálinu svonefnda, en niðurstaðan féll Samherja í vil.

Hæstiréttur
Auglýsing

Verk­lag innan Seðla­banka Íslands verður yfir­far­ið, í kjöl­far nið­ur­stöðu Hæsta­réttar í Sam­herj­a­mál­inu svo­nefnda, þar sem 15 millj­óna króna stjórn­valds­sekt var ógild og nið­ur­staða úr hér­aði þar með stað­fest. 

Í ítar­legri til­kynn­ingu frá Seðla­banka Íslands, vegna nið­ur­stöð­unnar frá 8. nóv­em­ber í Hæsta­rétti, segir að Seðla­bank­inn að sam­kvæmt lögum hafi bank­anum borið að kæra mál þar sem grunur vakn­aði um brot gegnum lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál.

Það hafi verið gert í takt við ráð­gjöf þar um.

Auglýsing

Yfir­lýs­ingin í heild sinni fer hér á eft­ir:

„Hinn 8. þessa mán­aðar stað­festi Hæsti­réttur dóm Hér­aðs­dóms Reykja­víkur í máli Sam­herja hf. gegn Seðla­banka Íslands, en í mál­inu krafð­ist Sam­herji hf. ógild­ingar á ákvörðun Seðla­bank­ans um greiðslu sektar að fjár­hæð 15.000.000 kr. vegna brota gegn lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál sem mæla fyrir um skila­skyldu erlends gjald­eyr­is. Um var að ræða lít­inn hluta af meintum brotum sem Seðla­bank­inn kærði til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara á árinu 2013 og sem emb­ættið hafði end­ur­sent bank­anum til með­ferð­ar. Var það nið­ur­staða hér­aðs­dóms, sem Hæsti­réttur hefur nú stað­fest, að Sam­herji hf. hefði mátt binda rétt­mætar vænt­ingar við að málið hefði verið látið niður falla með vísan til bréfa­sam­skipta félags­ins og Seðla­bank­ans um stöðu máls­ins á meðan það var í með­förum hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem yrði þannig jafnað til bind­andi stjórn­valds­á­kvörð­unar um nið­ur­fell­ingu þess. Í dóm­inum var ekki tekin afstaða til ann­arra máls­á­stæðna, þar með talið meintrar brot­legrar hátt­semi.

Í ljósi fréttaum­fjöll­unar um málið telur Seðla­bank­inn rétt að koma á fram­færi frek­ari skýr­ingum um stað­reyndir máls­ins. Sam­kvæmt lögum um gjald­eyr­is­mál þá ber Seðla­bank­anum að kæra grun um meiri­háttar brot til lög­reglu en hefur heim­ildir til að sekta í öðrum mál­um. Í sam­ræmi við þá skyldu sem hvíldi á Seðla­bank­anum beindi hann kæru til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara hinn 10. apríl 2013 vegna meintra brota Sam­herja hf. og tengdra aðila á lögum um gjald­eyr­is­mál og reglum sam­kvæmt þeim. Emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara end­ursendi málið hinn 23. ágúst 2013 til Seðla­bank­ans þegar í ljós kom að lög­að­ilar gætu ekki borið refsi­á­byrgð á brotum á lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál. Þessir ann­markar á lög­un­um, sem fyrst komu í ljós við með­ferð þessa máls, höfðu víð­tæk áhrif þar sem sam­bæri­legir ann­markar voru á annarri lög­gjöf á fjár­mála­mark­aði allt frá árinu 2007. Lög­gjaf­inn hefur nú lag­fært umrædda annmarka.

Í kjöl­farið beindi Seðla­bank­inn kæru hinn 9. sept­em­ber 2013 til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara sem beind­ist að fyr­ir­svars­mönnum Sam­herja hf. og tengdra aðila og varð­aði kæran í meg­in­at­riðum sömu sak­ar­efni og fyrri kæra bank­ans. Málið var til rann­sóknar hjá emb­ætt­inu í tvö ár og var síðan fellt niður sem saka­mál og end­ur­sent bank­anum hinn 4. sept­em­ber 2015 til með­ferðar og ákvörð­un­ar, þar sem eftir stóðu heim­ildir bank­ans til álagn­ingar stjórn­valds­sekta á hendur lög­að­il­um, að öðrum skil­yrðum upp­fyllt­um. Emb­ættið benti jafn­framt á ann­marka sem urðu við setn­ingu reglna nr. 1130/2008, um gjald­eyr­is­mál, þar sem form­legt sam­þykki ráð­herra skorti. Ljóst er að þessir ann­markar sem urðu við setn­ingu regln­anna í des­em­ber 2008 og komu í ljós eftir að málið var kært í seinna skiptið hafa haft áhrif á mál sem vörð­uðu meint brot á gild­is­tíma regln­anna. Seðla­bank­inn tók í kjöl­farið málið til með­ferðar og felldi niður mestan hluta þess hinn 30. mars 2016, m.a. vegna áður­nefndra ann­marka við setn­ingu reglna nr. 1130/2008. Bank­inn tók lít­inn hluta máls­ins, sem nú tald­ist minni­hátt­ar, til áfram­hald­andi stjórn­sýslu­með­ferðar og ákvarð­aði sekt hinn 1. sept­em­ber 2016 vegna brota á lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál um skila­skyldu erlends gjald­eyr­is. Það var meðal ann­ars gert á grund­velli jafn­ræð­is­sjón­ar­miða vegna ann­arra sam­bæri­legra mála sem áður hafði verið lokið með stjórn­valds­sekt.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.

Í nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms sem Hæsti­réttur stað­festi 8. þessa mán­aðar kom fram að emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafi ekki talið efni til að vísa kærunni frá á grund­velli laga um með­ferð saka­mála og að af því mætti ráða að það væri ekki mat sér­staks sak­sókn­ara að efn­is­at­riði kærunnar væru á engum rökum reist. End­ursendi því sér­stakur sak­sókn­ari málið í heild sinni til Seðla­bank­ans til með­ferðar og ákvörð­unar með vísan til laga um gjald­eyr­is­mál.

Seðla­bank­inn leit á með­ferð máls­ins hjá Seðla­bank­anum og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara sem sam­fellda og heild­stæða þar sem sömu meintu brot voru til rann­sókn­ar. Var það í sam­ræmi við lög­fræði­á­lit sem bank­inn afl­aði og skýrslu Laga­stofn­unar Háskóla Íslands um úttekt á stjórn­sýslu bank­ans við fram­kvæmd laga um gjald­eyr­is­mál, sem laut m.a. að þessu til­tekna máli. Vegna fram­an­greinds taldi Seðla­bank­inn því rétt að fá úr álitefn­inu skorið fyrir Hæsta­rétti. End­an­leg nið­ur­staða dóm­stóla liggur nú fyrir og mun Seðla­bank­inn meta verk­lag vegna máls­með­ferðar innan bank­ans í kjöl­far dóms­ins í til­vikum sem þess­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent