Valka hefur samið við Murman Seafood um hönnun og uppsetningu á nýrri hátæknifiskvinnslu í borginni Kola í Murmansk í Rússlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.
Samkvæmt fyrirtækinu er fiskvinnslan fyrsta sinnar tegundar í landinu og verður tæknilegasta bolfiskvinnslan í Rússlandi að uppsetningu lokinni. Valka mun hafa yfirumsjón með verkefninu en auk Völku koma fleiri tækjaframleiðendur að uppsetningu vinnslunnar. Heildarsamningurinn hljóðar upp á 1,3 milljarða króna.
Verkefnið hefur verið í undirbúningi í rúmlega ár og er gangsetning áætluð seinni hluta næsta sumars.
Murman Seafood gerir út sex frystitogara og er eitt þeirra fyrirtækja sem fékk úthlutað viðbótarkvóta hjá rússneskum yfirvöldum gegn því að fjárfesta í landvinnslu. Vinnsluhúsið sem byggt verður frá grunni verður búið nýjustu tækni og tækjum og þar á meðal eru sjálfvirkar beina- og bitaskurðavélar frá Völku.
Með nýja vinnslukerfinu gefst Murman Seafood tækifæri til þess að hámarka verðmæti þeirra 50 tonna af hráefni sem áætlað er að vinna í nýju vinnslunni á degi hverjum. Fram að þessu hefur hráefnið að mestu leyti verið selt heilfryst en með þessari fjárfestingu getur fyrirtækið boðið upp á ferskar hágæða vörur sem eru tilbúnar á neytendamarkað.
Helgi Hjálmarsson framkvæmdastjóri Völku ehf. segir það hafa verið mjög ánægjulegt að vinna að undirbúningi að þessu metnaðarfulla verkefni með Murman Seafood. „Þetta er fyrsta verkefni þessarar tegundar hjá Völku og stefnum við að því að þróa starfsemi okkar enn frekar í þessa átt. Ávinningurinn af því að einn aðili sjái um allan tækjabúnað í stað fjölmargra fyrirtækja er að flýta vinnsluferlinu og sjá til þess að flæðið í vinnslunni sé með sem bestu móti. Með þessari nálgun verður vinnslan sú tæknilegasta í Rússlandi, framleiðinin hámörkuð og fiskurinn skorinn með þeim hætti að verðmæti hans sé sem mest,“ segir hann.
Denis V. Khiznyakov framkvæmdastjóri landvinnslu hjá Murman Seafood segir að með byggingu á þessari hátækniverksmiðju sé verið að bregðast við þörfum markaðarins og bæta samkeppnisstöðuna á alþjóðamarkaði.
„Við munum áfram framleiða hefðbundar flakaafurðir en einnig hefja framleiðslu á bitum sem kallar á aukinn sveigjanleika og tæknistig í vinnslunni. Afurðirnar okkar verða seldar bæði innanlands og til útflutnings. Við erum afar ánægðir með samstarfið við Völku fram að þessu, þeir eru mjög lausnamiðaður samstarfsaðili. Vinnslulínan frá þeim er sú fullkomnasta sem er í boði í dag og mun skapa okkur ákveðna sérstöðu,“ segir Denis.