Öryrkjabandalag Íslands segir fullyrðingar Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra á Alþingi í gær vera rangar. Þar sagði hann að bætur til lífeyrisþegar hefðu hækkað um 1,1 milljón króna á ári frá árinu 2010. Það væri hækkun sem næmi hátt í 92 þúsundum á mánuði, á hvern mann í hverjum mánuði undanfarin átta ár.
Þetta kemur fram í frétt bandalagsins í dag.
ÖBÍ segir að erfitt sé að koma þessum upplýsingum heim og saman við þann veruleika sem öryrkjar búa við.
Í fréttinni kemur jafnframt fram að fjármálaráðherra hafi svarað mörgum óundirbúnum fyrirspurnum í þinginu í gær. Honum hafi verið tíðrætt um misskilning þingmanna í svörum sínum. Í svari við fyrirspurn frá þingmanni Miðflokksins sagði hann meðal annars þetta um hækkun bóta og aukningu kaupmáttar á árunum 2010 til 2017.
„Hvað þýðir þetta í auknum bótarétti fyrir hvern og einn bótaþega? Þetta þýðir að bæturnar hafa hækkað fyrir hvern og einn bótaþega um 1,1 milljón á ári. Hvers vegna stendur þá þessi hv. þingmaður hér og heldur því fullum fetum fram að þessi hópur hafi algerlega setið eftir? Tölurnar sýna allt annað,“ sagði Bjarni.
Flestir öryrkjar með örorkulífeyrisgreiðslur langt undir 300 þúsund krónum
ÖBÍ segir að staðreyndin sé hins vegar sú að flestir öryrkjar séu með örorkulífeyrisgreiðslur langt undir 300 þúsund krónum á mánuði, fyrir skatt. Einungis 29 prósent örorkulífeyrisþega fái 300 þúsund króna grunnframfærslu á mánuði sem hafi náðst fram með gríðarlegum þrýstingi á stjórnvöld við gerð fjárlaga þessa árs. Sjö af hverjum tíu sitji enn úti í kuldanum.
Þá er bent á það í umsögn ÖBÍ við frumvarp til fjárlaga næsta árs, að kaupmáttur öryrkja hafi nær ekkert aukist á því tímabili sem ráðherrann talar um. Raunar hafi hann verið neikvæður megnið af tímabilinu, þar sem umrædd kaupmáttaraukning síðustu ára hafi ekki náð til örorkulífeyrisþega. Staðreyndin sé sú að á árunum 2010 til 2017 hafi óskertur lífeyrir einungis hækkað um 74.383 krónur samanlagt á mánuði á meðan þingfararkaup hækkaði um 581.190 krónur.