Drífa: Fleiri lóðir og meiri aðstoð við ungt fólk

Forseti ASÍ segir að endurhugsa þurfi stefnu í húsnæðismálum. Útvega þurfi fleiri lóðir og hjálpa ungu fólki að koma þaki yfir höfuðið.

Drífa Snædal
Auglýsing

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, segir að stjórn­völd og sveit­ar­fé­lög verði að koma að því að styrkja stöðu hús­næð­is­mála með því að útvega fleiri lóðir til að byggja og styðja við ungt fólk sem er að fara út á hús­næð­is­mark­að. 

Í við­tali við RÚV í kvöld sagði hún að aðgerða væri þörf, og óhjá­kvæmi­legt að stjórn­völd kæmu að mál­um. Hún sagði vera uppi „krísu“ sem þyrfti að leysa úr, og þar þyrfti að horfa til þess að byggja meira og aðstoða fólk. „­Fólk sem er á leigu­mark­aði er senni­lega það fólk sem býr við verstu kjörin í dag. Þetta er fólkið á lægstu laun­un­um, greiðir mest í íbúð­ar­kostnað og leigan hefur hækkað tölu­vert umfram það sem kaup­máttur hefur auk­ist eða launa­hækk­an­ir,“ sagði Drífa í við­tali við RÚV.

Hún beindi einnig spjótum sínum að sveit­ar­fé­lög­un­um, enda er lóða­út­hlutun og skipu­lag nýrrar byggðar á hendi þeirra. „Ríkið þarf að verja leigj­endur gegn takt­vissum hækk­unum á hverju ein­asta ári frá leigu­fé­lögum og leigu­söl­u­m,“ sagði Drífa. 

Auglýsing

Í pistli á vef ASÍ í dag, sagði hún það von­brigði að stjórn­völd virt­ust ekki ætla að vera með nein útspil inn í kjara­við­ræð­ur, sé mið tekið af fjár­lögum 2019. Hún sagði stjórn­völd vera með þessu að svíkja gefin lof­orð.

Stett­ar­fé­lögin hafa í kröfu­gerð sinni, fyrir kjara­við­ræð­ur, lagt áherslu á hús­næð­is­mál­in, og vilja að meira sé gert til að tryggja rétt fólks á fast­eigna­mark­að­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent