Stjórnvöld ætla ekki að eiga frumkvæði að því að jafna kjörin og beita skatt- og bótakerfinu til jöfnuðar. Slíkar breytingar þarf greinilega að sækja fast og eru það vonbrigði.
Þetta segir Drífa Snædal, forseti ASÍ, í pistli á vef félagsins.
Hún gerir fjárlög fyrir næsta á að umtalsefni og segir nýframkomnar breytingartillögur sýna að stjórnvöld séu ekki að hjálpa til. Kjarasamningar hjá helmingi starfsmanna á vinnumarkaði séu að renna út um áramótin, og það sé nauðsynlegt að hafa aðkomu að þeim í gegnum skatta- og bótakerfið.
„Þessar áherslur er verkalýðshreyfingin sammála um og hafa legið fyrir lengi. Stjórnvöld hafa líka verið upplýst um áherslurnar enda blasir vandinn við þeim sem vilja sjá hann. Engu að síður ákveða stjórnvöld að sýna enga tilburði í þessa átt við vinnslu fjárlaga eins og þessi úrlausnarefni komi þeim lítið við. Það er ljóst að verkalýðshreyfingin þarf að vera háværari og reisa skýrari kröfur til að ná fram nauðsynlegum samfélagsbreytingum,“ segir Drífa.
Hún segir sumar tillögurnar beinlínis ganga gegn samningum, og nefnir þar VIRK - Starfsendurhæfingarsjóð sem dæmi. „Má þar nefna loforð um 4 miljarða aukningu í málefni öryrkja og fatlaðs fólks sem hefur verið mikið í umræðunni en auk þess lítur út fyrir að meirihluti fjárlaganefndar ætli beinlínis að brjóta samning um framlög til VIRK og munar þar 73 milljónum króna [...] Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verður upphæðin 739,5 milljónir. Þrátt fyrir ábendingar hefur þessi upphæð ekki verið löguð í meðförum fjárlaganefndar.“