Heimavellir tilkynntu til Kauphallar Íslands í gærkvöldi að félagið hafi ákveðið að selja eignir fyrir alls 17 milljarða króna á árunum 2018-2020 í stað tíu milljarða króna líkt og fram hafði komið í skráningarlýsingu Heimavalla sem birt var í vor.
Í tilkynningunni segir að eignasalan muni „hafa þau áhrif á fjárhag félagsins að fjárbinding mun minnka, svo og tekjur lækka í samræmi við fækkun eigna. Þannig er gert er ráð fyrir að ársvelta 2019 og 2020 verði ríflega 3,5 milljarðar króna og áætlað að EBITDA hlutfall félagsins verði 64 prósent á árinu 2019 og hækki í 67-68 prósent á árinu 2020.“
Heimavellir ætla auk þess að kaupa eignir fyrir tæpa níu milljarða króna fram til loka árs 2020, leggja áherslu á að eiga heil fjölbýlishús og að geta boðið upp á litlar og hagkvæmar íbúðir í auknum mæli frá því sem nú er.
Alls er fasteignasafn Heimavalla metið á 55 milljarða króna í dag. Að lokinni endurskipulagningu á árinu 2020 stefnir félagið að því að eiga 1.645 íbúðir.
Gengi bréfa í Heimavöllum hefur hækkað lítillega í dag, eða um 2,8 prósent. Við lok viðskipta í gær var það 1,08 krónur á hlut sem er lægsta gengi sem verið hefur á hlutum félagsins.
Stærsta almenna leigufélagið
Heimavellir er stærsta leigufélagið á almennum markaði og það eina slíka sem er skráð í Kauphöll Íslands. Það átti 1.983 íbúðir í lok september síðastliðins en tapaði alls 36 milljónum króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2018. Vel gekk hjá félaginu á þriðja ársfjórðungi þar sem hagnaður þess var 100 milljónir króna. Hann er þó allur tilkomin vegna söluhagnaðar á fasteignum sem skilaði Heimavöllum 112 milljónum króna á tímabilinu.
Leigutekjur Heimavalla á fyrstu níu mánuðum ársins voru tæplega 2,8 milljarðar króna og söluhagnaður vegna sölu á fasteignum alls 222 milljónir króna á tímabilinu. Heimavellir áætla að tekjur ársins 2018 verði samtals 3,7 milljarðar króna, að þær verði tæplega 3,9 milljarðar króna á næsta ári og nái að verða rúmlega fjórir milljarðar króna árið 2020.
Undirbúa endurfjármögnun
Eigið fé Heimavalla var 18,7 milljarðar króna í lok september og heildarskuldir félagsins 39,7 milljarðar króna. Af langtímaskuldum Heimavalla voru verðtryggð lán frá lánastofnunum 30,6 milljarðar króna. Þau lán eru að mestu frá Íbúðalánasjóði og uppistaða þeirra eru lán sem veitt voru á grundvelli reglugerðar um lánveitingar sjóðsins frá árinu 2013 til sveitarfélaga, félaga og félagasamtaka sem ætlaðar eru til byggingar eða kaupa á leiguíbúðum. Markmið þeirrar reglugerðar er að „stuðla að framboði á leiguíbúðum fyrir almenning á viðráðanlegum kjörum“. Um síðustu áramót skulduðu Heimavellir 18,6 milljarða króna í slík lán. Þau félög sem hafa fengið slík lán mega ekki greiða arð né arðsgildi.
Heimavellir hafa verið að undirbúa endurfjármögnun á langtímaskuldum sínum og í tilkynningu sem félagið sendi frá sér í lok ágúst sagði að fyrirhugað væri að hrinda endurfjármögnuninni í framkvæmd á næstu mánuðum. Því ferli er enn ekki lokið.