Heimavellir ákveða að selja fleiri fasteignir

Í skráningarlýsingu Heimavalla frá því í vor kom fram að félagið ætlaði að selja fasteignir fyrir tíu milljarða fyrir árslok 2020. Nú hefur það ákveðið að selja eignir fyrir 17 milljarða á tímabilinu.

Heimavellir voru skráðir á markað fyrr á þessu ári.
Heimavellir voru skráðir á markað fyrr á þessu ári.
Auglýsing

Heima­vellir til­kynntu til Kaup­hallar Íslands í gær­kvöldi að félagið hafi ákveðið að selja eignir fyrir alls 17 millj­arða króna á árunum 2018-2020 í stað tíu millj­arða króna líkt og fram hafði komið í skrán­ing­ar­lýs­ingu Heima­valla sem birt var í vor.

Í til­kynn­ing­unni segir að eigna­salan muni „hafa þau áhrif á fjár­hag félags­ins að fjár­bind­ing mun minn­ka, svo og tekjur lækka í sam­ræmi við fækkun eigna. Þannig er gert er ráð fyrir að árs­velta 2019 og 2020 verði ríf­lega 3,5 millj­arðar króna og áætlað að EBITDA hlut­fall félags­ins verði 64 pró­sent á árinu 2019 og hækki í 67-68 pró­sent á árinu 2020.“

Heima­vellir ætla auk þess að kaupa eignir fyrir tæpa níu millj­arða króna fram til loka árs 2020, leggja áherslu á að eiga heil fjöl­býl­is­hús og að geta boðið upp á litlar og hag­kvæmar íbúðir í auknum mæli frá því sem nú er.

Auglýsing

Alls er fast­eigna­safn Heima­valla metið á 55 millj­arða króna í dag. Að lok­inni end­ur­skipu­lagn­ingu á árinu 2020 stefnir félagið að því að eiga 1.645 íbúð­ir. 

Gengi bréfa í Heima­völlum hefur hækkað lít­il­lega í dag, eða um 2,8 pró­sent. Við lok við­skipta í gær var það 1,08 krónur á hlut sem er lægsta gengi sem verið hefur á hlutum félags­ins.

Stærsta almenna leigu­fé­lagið

Heima­vellir er stærsta leig­u­­fé­lagið á almennum mark­aði og það eina slíka sem er skráð í Kaup­höll Íslands. Það átti 1.983 íbúðir í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins en tap­aði alls 36 millj­­ónum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018. Vel gekk hjá félag­inu á þriðja árs­fjórð­ungi þar sem hagn­aður þess var 100 millj­­ónir króna. Hann er þó allur til­­komin vegna sölu­hagn­aðar á fast­­eignum sem skil­aði Heima­­völlum 112 millj­­ónum króna á tíma­bil­inu.

Leig­u­­tekjur Heima­valla á fyrstu níu mán­uðum árs­ins voru tæp­­lega 2,8 millj­­arðar króna og sölu­hagn­aður vegna sölu á fast­­eignum alls 222 millj­­ónir króna á tíma­bil­inu. Heima­vellir áætla að tekjur árs­ins 2018 verði sam­tals 3,7 millj­­arðar króna, að þær verði tæp­­lega 3,9 millj­­arðar króna á næsta ári og nái að verða rúm­­lega fjórir millj­­arðar króna árið 2020.

Und­ir­búa end­ur­fjár­mögnun

Eigið fé Heima­valla var 18,7 millj­­arðar króna í lok sept­em­ber og heild­­ar­skuldir félags­ins 39,7 millj­­arðar króna. Af lang­­tíma­skuldum Heima­valla voru verð­­tryggð lán frá lána­­stofn­unum 30,6 millj­­arðar króna. Þau lán eru að mestu frá Íbúða­lána­­sjóði og upp­i­­­staða þeirra eru lán sem veitt voru á grund­velli reglu­­­gerðar um lán­veit­ingar sjóðs­ins frá árinu 2013 til sveit­­­ar­­­fé­laga, félaga og félaga­­­sam­­­taka sem ætl­­­aðar eru til bygg­ingar eða kaupa á leig­u­í­­­búð­­­um. Mark­mið þeirrar reglu­­­gerðar er að „stuðla að fram­­­boði á leig­u­í­­­búðum fyrir almenn­ing á við­ráð­an­­­legum kjöru­m“. Um síð­­­­­ustu ára­­­mót skuld­uðu Heima­vellir 18,6 millj­­­arða króna í slík lán. Þau félög sem hafa fengið slík lán mega ekki greiða arð né arðs­­gildi.

Heima­vellir hafa verið að und­ir­­búa end­­ur­fjár­­­mögnun á lang­­tíma­skuldum sínum og í til­­kynn­ingu sem félagið sendi frá sér í lok ágúst sagði að fyr­ir­hugað væri að hrinda end­­ur­fjár­­­mögn­un­inni í fram­­kvæmd á næstu mán­uð­­um. Því ferli er enn ekki lok­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent