Trump styður Sádi-Arabíu og olían hríðfellur

Eftir að Donald Trump lýsti yfir stuðningi við Sádí-Arabíu vegna morðsins á Jamal Khashoggi hrundi verðið á hráolíu.

Donald Trump
Auglýsing

Don­ald Trump Banda­ríkja­for­seti sendi frá sér yfir­lýs­ingu í dag, þar sem hann sagð­ist treysta yfir­völdum í Sádí-­Ar­abíu og að lík­lega myndi það aldrei skýr­ast til fulls hverjir hefðu staðið skipu­lagn­ingu morðs­ins á Jamal Khas­hoggi, pistla­höf­undi Was­hington Post, sem myrtur var í sendi­ráði Sádí-­Ar­abíu í Ist­an­bul, 3. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Trump sagð­ist treysta krón­prins­inum Mohammed bin Sal­man, en Was­hington Post greindi frá því fyrr í vik­unni að banda­ríska leyni­þjón­ustan teldi Salman hafa staðið að baki morð­inu á Khas­hoggi. Trump lét hafa eftir sér, að hann hafi ekki viljað hlusta á upp­tökur af því þegar Khas­hoggi var pynt­aður og síðan myrtur af aftöku­sveit Sádí-­Ara­ba, en tyrk­nesk yfir­völd, sem eru nú að rann­saka málið sjálf­stætt, full­yrða að krón­prins­inn hafi fyr­ir­skipað morð­ið.

Khas­hoggi hafði gagn­rýnt krón­prins­inn vegna stríðs­ins í Jem­en, en óbreyttir borg­arar hafa þar fallið í stríðs­á­tökum sem Sádí-­Ar­ab­ía, með stuðn­ingi Banda­ríkj­anna, hefur borið mesta ábyrgð á. Í pistli sem Khas­hoggi skrif­aði á vef Was­hington Post í sept­em­ber þá sagði hann að krón­prins­inn hefði þetta í hendi sér, sem hæst­ráð­andi í Sádí-­Ar­ab­íu, og gæti stöðvað stríðið og unnið að frið­sam­legri lausn með Íran og Banda­ríkj­un­um. 

Auglýsing

Olíuverð hefur hríðfallið í dag, eftir yfirlýsingu Trumps.

Eftir yfir­lýs­ingu Trumps í dag hrundi olíu­verð, og hefur lækkað um rúm­lega sjö pró­sent þegar þetta er skrif­að, en Trump hefur sjálfur talað fyrir því að olían eigi að lækka meira og hefur þrýst á Sádí-­Ar­abíu um að auka fram­leiðslu til að þrýsta verð­inu nið­ur. 

Hann hefur sagt að verðið eigi í reynd að vera lægra, og það muni að lokum draga úr verð­bólgu­þrýst­ingi í Banda­ríkj­unum og vinna gegn frek­ari vaxta­hækk­unum Seðla­banka Banda­ríkj­anna.

Svo virð­ist sem mark­að­ur­inn meti það þannig, að stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing Trumps leiði til þess að fram­leiðsla muni aukast og Banda­ríkin þannig ná sínu fram.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent