Ríkið áfrýjar dómi vegna skipunar dómara

Íslenska ríkið hefur áfrýjað dómum Héraðsdóms Reykjavíkur sem dæmdi ríkið bótaskylt í málum þeirra Jóns Höskuldssonar og Eiríks Jónssonar.

Eiríkur Jónsson er annar þeirra sem stefndi ríkinu vegna ólögmætra athafna Sigríðar Á. Andersen.
Eiríkur Jónsson er annar þeirra sem stefndi ríkinu vegna ólögmætra athafna Sigríðar Á. Andersen.
Auglýsing

Íslenska ríkið hefur áfrýjað dómum Hér­aðs­dóms Reykja­víkur sem dæmdi ríkið bóta­skylt í málum þeirra Jóns Hösk­ulds­sonar og Eiríks Jóns­son­ar. Þetta kemur fram í frétt RÚV.

Íslenska ríkið var dæmt þann 25. októ­ber síð­ast­lið­inn til að greiða Jóni og Eiríki bætur vegna ólög­­­­mætra athafna Sig­ríðar Á. And­er­­sen dóms­­­­mála­ráð­herra þegar hún skip­aði dóm­­­­ara í Lands­rétt. Jón og Eiríkur voru á meðal þeirra fjög­­­­urra umsækj­enda sem dóm­­­­nefnd hafði talið á meðal 15 hæf­­­­ustu til að starfa í rétt­inum en Sig­ríður vék til hlið­­­­ar. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Jóni fjórar millj­ónir króna í skaða­bæt­ur, 1,1 milljón króna í miska­bætur auk þess sem ríkið greiðir 1,2 milljón króna máls­kostnað hans. 

Dóm­ur­inn féllst á bóta­skyldu rík­is­ins gagn­vart Eiríki en hann mun þurfa að höfða skaða­bóta­mál til að inn­heimta þá bóta­skyldu. Ríkið greiðir 1,2 milljón króna máls­kostnað hans. 

Auglýsing

Aðal­með­ferð mál­anna tveggja fór fram í sept­em­ber síð­ast­liðn­um. Vitna­leiðslur í þeim fóru fram sam­hliða í ljósi þessi að sömu vitni voru kölluð fyr­ir.

Braut gegn ákvæðum stjórn­­­sýslu­laga

Sig­ríður Á. And­er­­sen dóms­­­mála­ráð­herra ákvað að víkja frá hæfn­is­mati dóm­­­­­nefndar um skipun 15 dóm­­­­­ara í Lands­rétt í lok maí 2017. Hún ákvað að til­­­­­nefna fjóra ein­stak­l­inga dóm­­­ara sem nefndin hafði ekki metið á meðal 15 hæf­­­ustu og þar af leið­andi að skipa ekki fjóra aðra sem nefndin hafði talið á meðal þeirra hæf­­­ustu. Alþingi sam­­­þykkti þetta í byrjun júní 2017.

Ást­ráður Har­alds­­­­son og Jóhannes Rúnar Jóhanns­­­­son, sem urðu báðir af dóm­­­­ara­­­­sæti í Lands­rétti vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­­ar, stefndu rík­­­­inu vegna ákvörð­unar Sig­ríð­­­ar. Hæst­i­­­réttur komst að þeirri nið­­­ur­­­stöðu í des­em­ber að Sig­ríður hafi brotið gegn stjórn­­­sýslu­lögum þegar hún ákvað að fara gegn áliti dóm­­­nefnd­­­ar­inn­­­ar. Í gær birti Stundin svo gögn sem sýna að sér­­­fræð­ingar stjórn­­­­­ar­ráðs­ins höfðu varað ráð­herr­ann við því að svona gæti far­ið.

Þeir eru báðir starf­andi lög­­­­­­­menn og lögðu ekki fram nein gögn sem gátu sýnt fram á fjár­­­­hagstjón vegna ákvörð­unar ráð­herra. Skorað var á þá fyrir dómi að leggja fram skatt­fram­­­­töl og þar með upp­­­­lýs­ingar um tekjur sínar þannig að unnt væri að taka afstöðu til þess hvort þeir hefðu beðið „fjár­­­­tjón vegna þeirra ákvarð­ana dóms­­­­mála­ráð­herra sem um ræðir í mál­in­u“. Hvor­ugur þeirra gerði slíkt og þess vegna var íslenska ríkið sýknað af við­­­­ur­­­­kenn­ing­­­­ar­­­­kröfu um fjár­­­­tjón. Íslenska rík­­­inu var hins vegar gert að greiða þeim miska­bæt­­­ur.

Tveir aðrir stefndu

Tveir aðrir menn sem voru á lista dóm­­­­nefndar yfir þá sem átti að skipa dóm­­­­ara höfð­uðu ekki slík mál. Annar þeirra, Jón Hösk­­­­ulds­­­­son hér­­­­aðs­­­­dóm­­­­ari, sendi hins vegar kröfu á íslenska ríkið eftir að dómur Hæsta­réttar lá fyrir þar sem hann krafði það um skaða- og miska­bætur vegna skip­unar í Lands­rétt. Þeirri kröfu var ekki svarað og í kjöl­farið höfð­aði Jón það mál sem dæmt var í í dag.

Jón krafð­ist þess að fá bætt mis­­­­mun launa, líf­eyr­is­rétt­inda og ann­­­­arra launa­tengdra rétt­inda dóm­­­­ara við Lands­rétt ann­­­­ars vegar og hér­­­­aðs­­­­dóm­­­­ara hins veg­­­­ar. Jón krafð­ist þess að fá þennan mun greiddan út starfsævi sína, eða í níu ár. Lands­rétt­­­­ar­­­­dóm­­­­arar fá 1,7 millj­­­­ónir króna í laun á mán­uði en hér­­­­aðs­­­­dóm­­­­arar 1,3 millj­­­­ónir króna.

Eiríkur ákvað að fylgja í fót­­spor Jóns snemma á þessu ári og stefndi rík­­inu. Hann er fæddur árið 1977 og er því rúm­lega fer­tugur að aldri. Eiríkur átti því um 27 ár eftir á vinn­u­­­­­mark­aði þegar skipað var í Lands­rétt miðað við hefð­bund­inn eft­ir­­­­­launa­ald­­­­­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent