32 milljónir í rit um sögu flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi

Á dögunum gaf Isavia út rit um sögu flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi. Verkið tók fjögur ár í vinnslu.

Við afhendingu söguritsins. Arnþór Gunnarsson, höfundur bókarinnar, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri.
Við afhendingu söguritsins. Arnþór Gunnarsson, höfundur bókarinnar, Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri.
Auglýsing

Heild­ar­kostn­aður rits um sögu flug­valla og flug­leið­sögu á Íslandi eftir Arn­þór Gunn­ars­son sagn­fræð­ing sem Isa­via gaf út á dög­unum var 32 millj­ónir króna, þ.e. kostn­aður við heim­ilda­öfl­un, vinnslu texta, ljós­mynd­ir, umbrot og prent­un.

Þetta kemur fram í svari Isa­via við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Sam­kvæmt svar­inu tók fjögur ár að vinna verkið en það er 546 blað­síð­ur. Björn Óli Hauks­son for­stjóri Isa­via færði Sig­urði Inga Jóhanns­syni sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra fyrsta ein­tak bók­ar­innar á dög­unum.

Í frétt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að árið 2016 hafi verið 70 ár liðin síðan Íslend­ingar fengu her­flug­velli banda­manna í Reykja­vík og Kefla­vík afhenta til eignar og hófu rekstur flug­leið­sögu­þjón­ustu á stórum hluta Norð­ur­-Atl­ants­hafs. „Árið 2017 voru líka þrjá­tíu ár liðin frá opnun Flug­stöðvar Leifs Eiríks­sonar sem olli straum­hvörfum í far­þega­flugi um Kefla­vík­ur­flug­völl. Flug­sam­göngur og inn­viðir sem þeim tengj­ast eru und­ir­staða sívax­andi ferða­þjón­ustu sem orðin er einn mik­il­væg­asti atvinnu­vegur þjóð­ar­inn­ar.“

Auglýsing

Í frétt­inni kemur jafn­framt fram að það sé við hæfi þegar opin­bert fyr­ir­tæki lætur skrá svo merka sögu að tryggja að hún nái til sem flestra lands­manna. Bókin er því gefin út í raf­bók­ar­formi í opnum aðgangi á vef Lands­bóka­safns­ins og Isa­via.

Höf­undur rits­ins, Arn­þór Gunn­ars­son, er sjálf­stætt starf­andi sagn­fræð­ing­ur. Hann lauk BA prófi í sagn­fræði frá Háskóla Íslands árið 1990 og MS-­prófi í ferða­mála­fræði frá sama skóla árið 2011. Eftir Arn­þór liggur fjöldi greina um sagn­fræði­leg efni í tíma­rit­um, þar á meðal í Sögu, tíma­riti Sögu­fé­lags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent