Atvinnuleysi kvenna ekki verið hærra í þrjú ár

Í október 2018 voru 4600 konur atvinnulausar en ekki hafa fleiri konur verið atvinnulausar í einum mánuði síðustu þrjú ár. Nokkur munur er á milli kynjanna en hann hefur ekki verið meiri í rúm þrjú ár.

jafnretti_17497914629_o.jpg
Auglýsing

Mun fleiri konur en karlar voru án atvinnu á Íslandi í októ­ber síð­ast­liðn­um. Þá voru 4600 konur atvinnu­lausar en aðeins 1600 karl­ar, sam­kvæmt vinnu­mark­aðs­rann­sókn Hag­stofu Íslands. Ekki hafa svo margar konur verið atvinnu­lausar í einum mán­uði síð­ustu þrjú ár eða síðan í sept­em­ber árið 2015 eða um 4,6 pró­sent kvenna. Tekið er þó fram á vef Hag­stof­unnar að íslenskur vinnu­mark­aður sveiflist reglu­lega milli mán­aða vegna árs­tíða­bund­inna þátta.

2,9 pró­sent atvinnu­leysi í októ­ber

Í októ­ber var aðeins 2,9 pró­sent atvinnu­leysi á Íslandi, 1,3 pró­sent karla og 4,6 pró­sent kvenna. Áætlað er að 204.700 manns á aldr­inum 16 til 74 ára hafi að jafn­aði verið á vinnu­mark­aði í októ­ber síð­ast­liðnum en það jafn­gildir 81,2 atvinnu­þátt­töku. Í heild­ina voru 6000 manns án vinnu og í atvinnu­leit í októ­ber, 4600 konur og 1400 karl­ar.

Atvinnu­lausir í októ­ber þetta árið mæld­ust 1.400 færri en í sama mán­uði árið 2017 þegar þeir voru 7.400 eða 3,7 pró­sent af vinnu­afl­inu. Sam­kvæmt árs­tíða­leið­rétt­ing­unni voru atvinnu­lausir 6.400 í októ­ber eða 3,1 pró­sent, sem er aukn­ing um 1,3 pró­sentu­stig síðan í sept­em­ber.

Auglýsing

Mynd: Hagstofa Íslands

Atvinnu­leysi sveiflu­kennt

Atvinnu­leysi er mjög sveiflu­kennt á milli mán­aða en atvinnu­leysi á Íslandi hefur nán­ast farið stöðugt lækk­andi eftir að það náði hámarki árin eftir hrun. Atvinnu­leysi kynj­anna hefur fylgst nokkuð að frá árinu 2014. Þó getur oft verið tals­verður munur á milli kynj­anna á milli­ ­mán­aða en í októ­ber á þessu ári var 3,5 pró­senta munur á atvinnu­leysi eftir kyni. Ef rýnt er í tölur Hag­stof­unnar kemur í ljós að ekki hefur verið svo mik­ill munur á milli kynj­anna í rúm þrjú ár.

Mynd: Hagstofa Íslands

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent