Starfsfólk Orkuveitunar gagnrýnir rangtúlkanir stjórnmálamanna og fjölmiðla

Starfsmannafélag Orkuveitu Reykjavíkur segist hafa fengið nóg af rangtúlkunum og ósanngirni sem stjórnmálamenn og fjölmiðlar setja á borð fyrir almenning í umræðum um vinnuaðstæður innan fyrirtækisins.

Auglýsing
Af fundi starfsmanna Orkuveitu Reykjavíkur.
Af fundi starfsmanna Orkuveitu Reykjavíkur.

„Full­yrð­ingar um að vinnu­staður okkar sé rot­inn og að hér ríki þöggun eru rang­ar.“ Þetta er á meðal þess sem fram kemur í yfir­lýs­ingu Starfs­manna­fé­lags Orku­veitu Reykja­víkur og trún­að­ar­manna starfs­manna sem send var fjöl­miðlum síð­degis í dag.

Til­efnið er sú umræða sem átt hefur sér stað um vinnu­staða­menn­ingu innan fyr­ir­tæk­is, fjöl­miðlaum­fjöllun um hana og orð stjórn­mála­manna um mál­ið.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að starfs­fólk Orku­veitu Reykja­víkur hafi „fengið nóg af rang­túlk­unum og ósann­girni sem stjórn­mála­menn og fjöl­miðlar setja á borð fyrir almenn­ing.  Það særir okkur hvernig stjórn­mála­menn og fjöl­miðlar tjá sig um vinnu­stað­inn sem þeir virð­ast ekki þekkja en leggja sig fram um að gera tor­tryggi­legan, rang­túlka nið­ur­stöður vinnu­staða­grein­ingar og skýrslu Innri end­ur­skoð­unar með það að mark­miði að því er virð­ist að grafa undan trausti gagn­vart fyr­ir­tæk­inu og þar með því fólki sem þar starfar. “

Auglýsing
Starfsmennirnir hvetja til þess að umræddir aðilar kynni sér meg­in­nið­ur­stöðu þeirrar skýrslu sem unnin var um stöðu mála innan fyr­ir­tæk­is­ins. Auk þess minna þeir á að í land­inu gildi lög um per­sónu­vernd og að starfs­fólk sem tjáði sig við gagna­öflun gerði það í trún­aði.

„Við óskum þess að þið séuð heil í því sem þið tjáið ykkur um og segið satt og rétt frá en dragið ekki upp myndir sem ekki eru til en við höfum á til­finn­ing­unni að þið vilduð frekar mála.  Nú er mál að linni.

Verið vel­komin í heim­sókn til okkar og kynna ykkur málin þá kannski rennur upp fyrir ykkur ljós að hérna vinnur venju­legt fólk, heið­ar­legt fólk og að fyr­ir­tækið er rekið af starfs­fólki sem hér vinn­ur, ekki af stjórn­mála­mönn­um.“

Stjórn Orku­veit­unar óskaði eftir því við innri end­­ur­­skoðun Reykja­vík­­­ur­­borgar í sept­­em­ber að gerð yrði úttekt á vinn­u­­stað­­ar­­menn­ingu og til­­­teknum starfs­­manna­­málum innan fyr­ir­tæk­is­ins. Málið má rekja til þess að Áslaug Thelma Ein­­ar­s­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­­stöð­u­­maður ein­stak­l­ings­­mark­aðar hjá Orku nátt­úr­unn­­ar, skrif­aði færslu á Face­­book þar sem hún sagð­ist hafa verið rekin fyrir að kvarta undan hegðun Bjarna Más Júlí­i­us­­son­­ar, þáver­andi fram­­kvæmda­­stjór ON. Bjarni Már var rek­inn vegna óvið­eig­andi fram­komu en ástæða upp­­sagn­­ar­innar voru tölvu­­póstar sem Bjarni sendi kven­kyns und­ir­­mönnum sín­­um.

Sam­­kvæmt nið­­ur­­stöðum úttekt­ar­innar voru upp­­sagnir þeirra Áslaugar Thelmu Ein­­ar­s­dóttur og Bjarna Más taldar rétt­­mæt­­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent