Þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins tóku Páll Magnússon, þingmann Sjálfstæðisflokksins, einnig fyrir í samræðum sínum á Klausturbar sem náðust á upptöku sem Stundin og DV hafa undir höndunum. Í upptökunum má heyra þau ræða það að ljóst væri að Páll yrði atvinnulaus eftir næstu kosningar. Þau sögðu hann latan en Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, hrósaði þó rödd Páls og sagði að kosningabarátta hans hefði verið unnin af fagmennsku en slíkt myndi þó ekki bjarga honum í næstu kosningum. Frá þessu er greint á DV í dag.
„Hann er svona letingi“
Í umfjöllun DV segir að þingmenn hafi farið ófögrum orðum um Pál Magnússon en Anna Kolbrún Árnadóttir þingmaður Miðflokksins og Bergþór Ólason ræða sérstaklega sín á milli leti Páls.
Anna Kolbrún sagði: „Ég er stundum að hitta konu sem heitir […], sem er fyrrverandi starfsmaður Háskólans á Akureyri.[ …] Alltaf þegar ég hitti hana, sem er stundum, þá spyr hún mig hvort Páll Magnússon sé alltaf jafn latur og hann var.“ Bergþór svarar um hæl og segir: „Rétta svarið við því er: Já.“
Anna Kolbrún og Bergþór halda áfram að ræða Pál og Anna Kolbrún segir: „[óskýrt] … Hann er svona letingi. Hann er ekkert rosalega með á nótunum í allsherjar- og menntamálanefnd.“
Bergþór spyr þá hvort Páll sé ekki formaður nefndarinnar og Anna Kolbrún svarar: „Jú. Hann tekur sér stundum tak. Um daginn var hann rosalega upptekinn af því að öryrkjum væri að fjölga og af því ég sit við hliðin á honum, ég er yfirleitt betur upplýst en hann, þá sendi ég honum frétt þess efnis að öryrkjum sé ekki að fjölga. Hins vegar var gert að klára upp afgreiðslur og beiðnum þeirra sem vilja komast á biðlista. Það gerði það að verkum árin 2016 og 2017 fjölgaði öryrkjum af því að það var verið að laga til í kerfinu. Þeim fækkaði 2018 og þeim mun fækka 2019. Ég sendi honum þessa frétt og sagði honum „ég vill ekki tala niður það sem þú varst að segja í sjónvarpinu en þetta er sem sagt svona.“ Hann tók ekki illa í þetta en hann er pínu populisti.“
Sigmundur tjáði sig hins vegar um bakgrunn Páls úr fjölmiðlum. Sigmundur nefndi að hann sjálfur væri með bakgrunn í sjónvarpi, hann stýrði meðal annars Kastljósi um tíma, en hann sagði að hans reynsla væri að stjórnmálamenn með þannig bakgrunn ættu erfitt uppdráttar. Nefndi hann í því samhengi Elínu Hirst, Sigmund Erni og taldi Pál Magnússon vera í þeim hópi. Sagði Sigmundur sjálfur að hann væri undantekning á reglunni en hrósaði honum Pál fyrir fagmennsku í kosningabaráttu.
Ræddu stöðu Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Samkvæmt umfjöllun DV hófust umræður um Pál Magnússon þegar þingmenn fóru yfir stöðu Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og veltu fyrir sér hverjir myndu raðast í efstu sæti flokksins í því kjördæmi. Þingmennirnir töldu nokkuð ljóst að Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, myndi taka fyrsta sætið meðan Ásmundur Friðriksson tæki annað sætið.
Vilhjálmi Árnasyni var lýst af þingmönnunum sem manni sem engum líkaði illa við en á sama tíma væri hann ekki í uppáhaldi margra, samkvæmt DV. Honum var lýst sem manni sem væri settur í verkefni svo sem leggja sífellt fram frumvarp um að leyfa áfengi í búðir. Litu þeir svo á að það væri ekki eftirsóknarvert verkefni fyrir þingmann sem ætlaði sér frama innan flokksins og kjördæmisins. Þá sögðu þau að ef hann myndi ofmetnast og sækjast eftir fyrsta eða öðru sæti yrði það til þess að hann myndi falla neðar á lista. Ef hann sætti sig við þriðja sæti, þá yrði það líklega hans.