Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Miðflokksins, hefur ákveðið að taka sér leyfi frá þingstörfum og ásamt Bergþóri Ólasyni, þingmanni sama flokks.
Ástæðan er fundur sex þingmanna Miðflokksins og Flokks fólksins á Klaustur bar, 20. nóvember síðastliðinn, en upptökur náðust af samtali þingmannanna þar sem þeir töluðu meðal annars með niðrandi hætti um samstarfsfólk sitt á þingi, ekki síst konur.
Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson hafa þegar verið reknir úr Flokki fólksins, en þeir munu sitja áfram sem þingmenn, þrátt fyrir það, og segjast hvorugur ætla að segja af sér.
Hið sama gerði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, í bréfi til flokksmanna Miðflokksins í dag, en hann sagðist í bréfinu sjá eftir að hafa ekki stoppað þessar umræður af.
Í yfirlýsingu frá Gunnari Braga kemur fram að hann hafi gert mikil mistök, og að hann ætli sér nú að reyna að vinna úr þeim.
„Fyrir tíu dögum sýndi ég mikið dómgreindarleysi og hafði uppi orð sem eru engum sæmandi. Það var mér mikið áfall að sjá hvaða orðfæri ég viðhafði og mun taka mig tíma að vinna úr því með vinum og fjölskyldu. Ég harma að hafa sært samstarfsfélaga mína og fleiri og tek ábyrgð á hegðun minni. Vil ég þó segja að mistök gerum við manneskjurnar víst og er öllu jafna auðveldara að dæma en að fyrirgefa. „Sá yðar er syndlaus er kasti fyrsta steininum“ Ég mun hafa það í huga hér eftir og hvet ykkur til þess sama. Ég vona að hlutaðeigandi fyrirgefi mér þessa hegðun en vegna hennar hef ég ákveðið að taka mér leyfi frá þingstörfum,“ segir Gunnar Bragi.