Karl Gauti Hjaltason fyrrum þingmaður Flokks Fólksins segir að fjölmiðlar hafi ranglega eignað honum setningu úr upptökunni á Klaustur bar. Þar á hann við frétt Stundarinnar þar sem Karl Gauti er sagður hafa kallað Eygló Harðardóttur, fyrrverandi félags- og húsnæðismálaráðherra „galna kerlingarklessu.“ í samtali á Klaustur bar þann 20. nóvember. Karl Gauti segir að fjölmiðlar hafi farið mannavillt þar sem hann hafi hlustað á upptökuna sjálfur og segir að þetta séu ekki hans orð né hans rödd sem talar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Karl Gauta í dag.
„Fjölmiðlar hafa ranglega eignað mér setningu úr upptökunni sem svo mjög hefur verið í fréttum að undanförnu. Þar fara þeir einfaldlega mannavillt og vonandi kemst það álíka vel til skila eins og uppslátturinn um það sem ég átti að hafa sagt um Eygló Harðardóttur. Upptakan er afar óskýr en það vefst samt ekki fyrir fjölmiðlum að greina annars vegar hvað er sagt og hins vegar hver talaði. Sjálfur get ég hvorugt eftir að hafa marghlustað á þetta brot úr upptökunni. Ég þekki hins vegar mitt orðfæri og mína rödd. Þessi orð voru ekki mín og sú rödd sem talar er það ekki heldur,“ segir í tilkynningunni.
Segist ekki hafa sagt neitt siðferðislega ámælisvert
Í tilkynningunni segir Karl Gauti jafnframt að hann hafi ekki sagt neitt siðferðislega ámælisvert á fundinum en að honum þyki leiðinlegt að hafa setið fundinn of lengi. „Mér þykir leitt að hafa setið þennan fund alltof lengi en sjálfur lagði ég ekkert það orð í belg sem talist getur siðferðislega ámælisvert.“
Karl Gauti segir jafnframt í tilkynningunni að ekki sé hægt að gera athugasemdir við að fjölmiðlar birti efni úr upptöku af þessu tagi úr því að hún sé til. Hann segir það hins vegar mikilvægt að fjölmiðlar viti nákvæmlega hver sagði hvað áður en þeir velja sér „uppsláttar fyrirsagnir“.
„Það er hins vegar mikilvægt að þeir nálgist slíka endursögn af varfærni og lágmarkskrafa er að þeir viti nákvæmlega hver sagði hvað þegar þeir velja sér uppsláttarfyrirsagnir um einstakar setningar,“ segir Karl Gauti í tilkynningunni.
Muni engu breyta um áherslur hans í þingstörfum
Karl Gauti og Ólafur Ísleifsson voru reknir úr Flokki fólksins í gær. Í tilkynningu frá flokknum segir að vegna alvarlegs trúnaðarbrest séu Karl Gauti og Ólafur reknir úr flokknum en að þeir muni sitja áfram sem alþingismenn. Karl Gauti og Ólafur, sátu á fundinum á Klaustur bar með þingmönnum Miðflokksins, þeim Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, Bergþóri Ólasyni, Gunnari Braga Sveinssyni og Önnu Kolbrúnu Árnadóttur. Á fundinum töluðu þeir með niðrandi hætti um konur sérstaklega, og lét Karl Gauti hafa eftir sér að Inga Sæland gæti ekki stjórnað Flokki fólksins.
Í tilkynningu Karls Gauta segir að ákvörðun stjórnar Flokks fólksins um að reka hann úr flokknum muni engu breyta um áherslur hans í áframhaldandi störfum hans sem þingmaður. „Ég gaf kjósendum mínum fyrirheit um áherslur og við þau mun ég standa,“ segir hann að lokum.