Karl Gauti segist ekki hafa sagt neitt siðferðislega ámælisvert

Karl Gauti Hjaltason þingmaður segir að fjölmiðlar hafi farið mannavillt og að það hafi ekki verið hann sem kallaði Eygló Harðardóttur „galna kerlingarklessu“ í upptökunni.

Karl Gauti Hjaltason
Karl Gauti Hjaltason
Auglýsing

Karl Gauti Hjalta­son fyrrum þing­maður Flokks Fólks­ins segir að fjöl­miðlar hafi rang­lega eignað honum setn­ingu úr upp­tök­unni á Klaustur bar. Þar á hann við frétt Stund­ar­innar þar sem Karl Gauti er sagður hafa kallað Eygló Harð­ar­dótt­ur, fyrr­ver­andi félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra „galna kerl­ing­ar­klessu.“ í sam­tali á Klaustur bar þann 20. nóv­em­ber. Karl Gauti segir að ­fjöl­miðl­ar hafi farið manna­villt þar sem hann hafi hlustað á upp­tök­una sjálfur og segir að þetta séu ekki hans orð né hans rödd sem tal­ar. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Karl Gauta í dag.

„Fjöl­miðlar hafa rang­lega eignað mér setn­ingu úr upp­tök­unni sem svo mjög hefur verið í fréttum að und­an­förnu. Þar fara þeir ein­fald­lega manna­villt og von­andi kemst það álíka vel til skila eins og upp­slátt­ur­inn um það sem ég átti að hafa sagt um Eygló Harð­ar­dótt­ur. Upp­takan er afar óskýr en það vefst samt ekki fyrir fjöl­miðlum að greina ann­ars vegar hvað er sagt og hins vegar hver tal­aði. Sjálfur get ég hvor­ugt eftir að hafa marg­hlustað á þetta brot úr upp­tök­unni. Ég þekki hins vegar mitt orð­færi og mína rödd. Þessi orð voru ekki mín og sú rödd sem talar er það ekki held­ur,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Seg­ist ekki hafa sagt neitt sið­ferð­is­lega ámæl­is­vert

Í til­kynn­ing­unn­i ­segir Karl Gauti jafn­framt að hann hafi ekki sagt neitt sið­ferð­is­lega ámæl­is­vert á fund­inum en að honum þyki leið­in­legt að hafa setið fund­inn of lengi. „Mér þykir leitt að hafa setið þennan fund alltof ­lengi en sjálfur lagði ég ekk­ert það orð í belg sem talist getur sið­ferð­is­lega ámæl­is­vert.“

Auglýsing

Karl Gauti segir jafn­framt í til­kynn­ing­unni að ekki sé hægt að gera athuga­semdir við að fjöl­miðlar birti efni úr upp­töku af þessu tagi úr því að hún sé til. Hann segir það hins vegar mik­il­vægt að fjöl­miðlar viti nákvæm­lega hver sagði hvað áður en þeir velja sér „upp­slátt­ar ­fyr­ir­sagn­ir“. 

„Það er hins vegar mik­il­vægt að þeir nálgist slíka end­ur­sögn af var­færni og lág­marks­krafa er að þeir viti nákvæm­lega hver sagði hvað þegar þeir velja sér upp­slátt­ar­fyr­ir­sagnir um ein­stakar setn­ing­ar,“ segir Karl Gauti í til­kynn­ing­unni.

Muni engu breyta um áherslur hans í þing­störf­um 

Karl Gauti og Ólafur Ísleifs­son voru reknir úr Flokki fólks­ins í gær. Í til­kynn­ingu frá flokknum segir að  vegna alvar­legs trún­að­ar­brest séu Karl Gauti og Ólafur reknir úr flokknum en að þeir muni sitja áfram sem alþing­is­menn. Karl Gauti og Ólaf­­ur, sátu á fund­inum á Klaustur bar með þing­­mönnum Mið­­flokks­ins, þeim Sig­­mundi Dav­íð G­unn­laugs­­syni, Berg­þóri Óla­­syni, Gunn­­ari Braga Sveins­­syni og Önnu Kol­brúnu Árna­dótt­­ur. Á fund­inum töl­uðu þeir með niðr­andi hætti um konur sér­­stak­­lega, og lét Karl Gauti hafa eftir sér að Inga Sæland gæti ekki stjórnað Flokki fólks­ins.

Í til­kynn­ingu Karls Gauta segir að á­kvörð­un ­stjórnar Flokks fólks­ins um að reka hann úr flokknum muni engu breyta um áherslur hans í áfram­hald­andi störfum hans sem þing­mað­ur. „Ég gaf kjós­endum mínum fyr­ir­heit um áherslur og við þau mun ég standa,“ segir hann að lok­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent