Ólafur Ísleifsson þingmaður segir að ákvörðun stjórnar Flokks fólksins um að reka hann og Karl Gauta Hjaltason alþingismann úr flokknum hafi komið sér á óvart. Hann vekur athygli á því að í umfjöllun fjölmiðla hafi ekki verið rakin til hans orð sem hægt sé að túlka sem siðferðislega ámælisverð eða neikvæð í garð nokkurs manns. Hann segir það þó hafa verið mistök að sitja þegjandi undir þeim ljótu orðum sem féllu þetta kvöld en að það sé ekki gild ástæða til að reka hann úr flokknum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ólafi í dag.
„Ég yfirgaf þetta samkvæmi þegar ég sá að í óefni stefndi. Þetta hefði ég átt að sjá fyrr og fara fyrr. Kemur spánskt fyrir sjónir að nærvera mín, en um leið hjáseta í hnífaköstum þessa orðljóta samkvæmis, þyki gild ástæða til brottreksturs úr stjórnmálaflokki,“ segir í tilkynningunni.
„Ég óttast að ákvörðun stjórnarinnar muni eftir á að hyggja þykja illa ígrunduð“
Ólafur segist ætla halda áfram baráttu fyrir þeim málefnum og áherslum sem hann lofaði kjósendum í aðdraganda alþingiskosninganna 2017, í störfum sínum sem óháður þingmaður utan flokka. Ólafur og Karl Gauti, fyrrverandi flokksmenn Flokks fólksins voru á stjórnarfundi flokksins í gær reknir úr flokknum. Atkvæði voru greidd um ákvörðunina, átta greiddu atkvæði með tillögunni en einn greiddi atkvæði á móti.
Ólafur segir jafnframt í tilkynningunni að með þessari stjórnarákvörðun flokksins hafi ný viðmið verið sett í Flokki fólksins. Hann segist óttast að ákvörðun stjórnarinnar muni eftir á hyggja þykja illa ígrunduð og vonast eftir því að þeir sem eftir eru muni standast þær siðferðiskröfur sem til þeirra hljóti að vera gerðar héðan í frá. Hann biðst afsökunar á þátttöku sinn í samsætinu á Klaustri en segist þó efast um að framtíðarhagsmunir flokksins hafi verið hafðir að leiðarljósi þegar stjórnin ákvað brottrekstur hans. „Á þeirri ákvörðun ber ég enga ábyrgð en stjórnin alla,“ segir hann að lokum.