Ólafur Ísleifsson: Hjáseta í hnífaköstum þessa orðljóta samkvæmis

Ólafur Ísleifsson segir að ákvörðun stjórnar Flokks fólksins um að reka hann úr flokknum hafi komið honum á óvart. Hann segir að orð hans í upptökunni sé ekki hægt að túlka sem siðferðilega ámælisverð eða neikvæð í garð nokkurs manns.

Ólafur Ísleifsson
Ólafur Ísleifsson
Auglýsing

Ólafur Ísleifs­son þing­maður segir að ákvörðun stjórnar Flokks fólks­ins um að reka hann og Karl Gauta Hjalta­son alþing­is­mann úr flokknum hafi komið sér á óvart. Hann vekur athygli á því að í umfjöllun fjöl­miðla hafi ekki verið rakin til hans orð sem hægt sé að túlka sem sið­ferð­is­lega ámæl­is­verð eða nei­kvæð í garð nokk­urs manns. Hann segir það þó hafa verið mis­tök að sitja þegj­andi undir þeim ljótu orðum sem féllu þetta kvöld en að það sé ekki gild ástæða til að reka hann úr flokkn­um. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ólafi í dag.

 „Ég yfir­gaf þetta sam­kvæmi þegar ég sá að í óefni stefndi. Þetta hefði ég átt að sjá fyrr og fara fyrr. Kemur spánskt fyrir sjónir að nær­vera mín, en um leið hjá­seta í hnífa­köstum þessa orð­ljóta sam­kvæm­is, þyki gild ástæða til brott­rekst­urs úr stjórn­mála­flokki,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

„Ég ótt­ast að ákvörðun stjórn­ar­innar muni eftir á að hyggja þykja illa ígrund­uð“

Ólafur seg­ist ætla halda áfram bar­áttu fyrir þeim mál­efnum og áherslum sem hann lof­aði kjós­endum í aðdrag­anda alþing­is­kosn­ing­anna 2017, í störfum sínum sem óháður þing­maður utan flokka. Ólafur og Karl Gauti, fyrr­ver­andi flokks­menn Flokks fólks­ins voru á stjórn­ar­fundi flokks­ins í gær reknir úr flokkn­um. Atkvæði voru greidd um ákvörð­un­ina, átta greiddu atkvæði með til­lög­unni en einn greiddi atkvæði á mót­i. 

Auglýsing

Ólafur seg­ir ­jafn­fram­t í til­kynn­ing­unni að með þess­ari stjórn­ar­á­kvörðun flokks­ins hafi ný við­mið verið sett í Flokki fólks­ins. Hann seg­ist ótt­ast að ákvörðun stjórn­ar­innar muni eftir á hyggja þykja illa ígrunduð og von­ast eftir því að þeir sem eftir eru muni stand­ast þær sið­ferð­is­kröfur sem til þeirra hljóti að vera gerðar héðan í frá. Hann bið­st af­sök­un­ar á þátt­töku s­inn í sam­sæt­inu á Klaustri en seg­ist þó efast um að fram­tíð­ar­hags­munir flokks­ins hafi verið hafðir að leið­ar­ljósi þegar stjórnin ákvað brott­rekstur hans. „Á þeirri ákvörðun ber ég enga ábyrgð en stjórnin alla,“ segir hann að lok­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent