Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, segir að talsmáti alþingismanna á Klaustursbarnum hafi auðvitað ofboðið honum. Hann segir að þingmennirnir hafi gerst sekir um virðingarleysi og sjálfsupphafningu „Þetta er ekki leiðin til auka traust almennings á Alþingi. Að viðhafa svona orðfæri sem er til merkis um einhvern undirliggjandi vanda. Manni ofbauð, það er ekkert flóknara en það,“ segir Guðni í viðtali í Silfrinu í morgun.
Í valdi kjósenda að ráða og reka þingmenn
Guðni segir í viðtalinu að þetta sé ekki leiðin til auka traust almennings á Alþingi en svarar aðspurður um hvernig hægt sé að endurreisa traust að það sé ekki hans sem forseta landsins að segja þingmönnum ekki fyrir verkum, ráði þá eða reki. „Allt það er nú í valdi kjósenda og svo er samviskan það vald sem frjálsir menn hlýða,“ segir Guðni.
Hann segir jafnframt að mikilvægt sé fyrir alla að reyna standa sig vel í vinnunni, sérstaklega þá sem eru í þjóðkjörnum stöðum. „En ég held að það yrði ekki til framdráttar góðum málstað ef ég færi að setja mig á afskaplega háan stall og segja öðrum til syndanna. En um leið leyfir maður sér að vona að fólk finni hjá sjálfu sér hvað það hefur gert og hvernig beri að bregðast við,“ segir Guðni.
Viðtalið við Guðna var tekið á föstudaginn, áður en tilkynnt var að Gunnar Bragi og Bergþór væru farnir í leyfi og að búið væri að reka þá Karl Gauta og Ólaf úr Flokki fólksins.