Krefjast þess að „klausturs-þingmenn“ segi af sér

Í dag var fjölmennt á mótmælum á Austurvelli vegna „Klaustursmálsins“. Krafist er að þingmennirnir sex segi af sér tafarlaust, einnig er krafist þess að rannsókn verði hafin á brotum þingmannanna og að alþingismenn verði endurmenntaðir í jafnréttisfræðslu

Mótmæli
Auglýsing

Í dag var boðað til mót­mæla­fundar á Aust­ur­velli í til­efni þeirra „yf­ir­gengi­legu for­dóma og mann­fyr­ir­litn­ingu“ sem sex þing­menn höfðu frammi á fundi sínum á Klaustur bar. Í yfir­lýs­ingu frá skipu­leggj­endum mót­mæl­anna segir að ­þing­menn­irnir sex hafi ekki aðeins ráð­ist með orðum á þá ein­stak­linga sem þeir nefndu í sam­ræðum sín­um, heldur á alla hópa sem barist hafa fyrir jöfn­uði í marga ára­tug­i. Á mót­mæla­fund­inum héldu m.a. Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, Þur­íður Harpa Sig­urð­ar­dótt­ir, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttur borg­ar­full­trúi ræð­ur.

Krefj­ast taf­ar­lausra afsagna, lög­reglu­rann­sókn­ar, upp­töku nýrrar stjórn­ar­skrár og end­ur­menntun alþing­is­manna

Skipu­leggj­endur mót­mæl­anna við Aust­ur­völl í dag hafa sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þau krefj­ast þess að allir þing­menn­irnir í hinu svo­kall­aðu „klaust­ur­s-­máli“, þau Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, Gunnar Bragi Sveins­son, Berg­þór Óla­son, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son, segi af sér taf­ar­laust, ekki ein­ungis úr flokkum sínum heldur frá störfum sínum á Alþing­i. Í yfir­lýs­ing­unni segir „Þessar kröfur eru ekki kurt­eis­is­legar beiðn­ir, þetta eru kröfur um taf­ar­lausar breyt­ing­ar.“

Skjáskot úr frétt Rúv

Ásamt afsögn ­þing­mann­anna er kraf­ist þess að taf­ar­laus rann­sókn verði hafin á lög­brotum og brotum á siða­reglum Alþingis sem „komst upp um“ í  upp­tök­un­um. Meðal brot­anna sem nefnd eru í yfir­lýs­ing­unni er drykkja á vinnu­tíma, sem varðar þing­skap­a­lög, hrossa­kaup Bjarna Bene­dikts­sonar við Gunnar Braga og Sig­mund Davíð varð­andi Geir H. Haar­de og sendi­herra­stöð­ur, sem varða við almenn hegn­ing­ar­lög og skýrt brot á fjölda liða í siða­reglum alþingismanna. 

Auglýsing

Jafn­framt er kraf­ist þess í yfir­lýs­ing­unni að breyt­ingar verði gerðar á málum þannig að reka megi þing­menn af Alþingi ger­ist þeir brot­legir við lög eða siða­reglur alþing­is­manna. Auk þess krefj­ast þau taf­ar­lausar end­ur­menntar allra starfs­manna Alþingis í jafn­rétt­is­fræðslu og ein­elt­is­mál­u­m.  

Í yfir­lýs­ing­unni er einnig kraf­ist þess að frum­varp stjórn­laga­ráðs um nýja stjórn­ar­skrá verði tekið upp án tafar og að í kjöl­farið verði farið í það að taka upp nýja stjórn­ar­skrá sem sam­þykkt var í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu. Undir þessar kröfur rita þau Andri Sig­urðs­son, Alex­andra Krist­jana Ægis­dóttir , Arn­dís Jón­as­dóttir og Júlía Sveins­dótt­ir. 

Kröfur hags­muna­sam­taka 

Kröfur hags­muna­sam­taka eru einnig settar fram í yf­ir­lýs­ing­unni. Þar á meðal er krafa um taf­ar­lausa afsögn ­þing­mann­anna sett fram af Öryrkja­banda­lag­inu, Kvenna­hreyf­ing­unni og ­Femínista­fé­lagi Háskóla Íslands. „Sú fyr­ir­litn­ing á fólki sem hefur komið fram í orðum tíunda hluta þing­heims, sýnir að þing­menn­irnir eru með öllu ófærir um að gegna trún­að­ar­störfum fyrir almenn­ing. Þeir verða að taka pok­ann sinn. Flókn­ara er það ekki.“ segir í yfir­lýs­ingu Öryrkja­banda­lags­ins.

Ásamt afsögn þing­manna krefst Kvenna­hreyf­ingin þess að allir þing­menn sitji í gegnum tíu klukku­stunda jafn­rétt­is­fræðslu sem verður sam­eig­in­lega unnin af þeim félags­sam­tökum sem best þekkja til. Ásamt því skora Sam­tök­in'78 á þing­menn og  alla stjórn­mála­flokka að sam­þykkja aldrei kven­fyr­ir­litn­ing­u, hinseg­in­fó­b­íu eða ­fötl­un­ar­for­dóma, „Eitruð orð­ræða grefur undan öryggi jað­ar­settra hópa og við minnum ykkur á að ábyrgð ykkar er gíf­ur­leg.“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna. NPA mið­stöðin krefst þess að „al­þing­is­fólk hafi þekk­ingu á mann­rétt­inda­samn­ingum og lögum og temji sér að virða kjós­endur sína alla, minni­hluta­hópa sem aðra.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent