Forseta Íslands ofbauð talsmáti þingmanna á Klaustur bar

Guðni Th. Jóhannesson segir að talsmáti þingmanna á Klaustur bar hafi ofboðið honum í Silfrinu í morgun. Hann segir það ekki sitt hlutverk að segja þingmönnunum til syndanna en hann voni að fólki finni hjá sjálfum sér hvernig beri að bregðast við.

Guðni Th. Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannesson
Auglýsing

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, segir að talsmáti alþing­is­manna á Klaust­urs­barnum hafi auð­vitað ofboðið hon­um. Hann segir að þing­menn­irnir hafi gerst sekir um virð­ing­ar­leysi og sjálfs­upp­hafn­ing­u „Þetta er ekki leiðin til auka traust almenn­ings á Alþingi. Að við­hafa svona orð­færi sem er til merkis um ein­hvern und­ir­liggj­andi vanda. Manni ofbauð, það er ekk­ert flókn­ara en það,“ segir Guðni í við­tali í Silfr­inu í morg­un. 

Í valdi kjós­enda að ráða og reka þing­menn 

Guðni segir í við­tal­inu að þetta sé ekki leiðin til auka traust almenn­ings á Alþingi en svarar aðspurður um hvernig hægt sé að end­ur­reisa traust að það sé ekki hans sem for­seta lands­ins að segja þing­mönnum ekki fyrir verk­um, ráði þá eða reki. „Allt það er nú í valdi kjós­enda og svo er sam­viskan það vald sem frjálsir menn hlýða,“ segir Guðni.

Hann segir jafn­framt að mik­il­vægt sé fyrir alla að reyna standa sig vel í vinn­unni, sér­stak­lega þá sem eru í þjóð­kjörnum stöð­um. „En ég held að það yrði ekki til fram­dráttar góðum mál­stað ef ég færi að setja mig á afskap­lega háan stall og segja öðrum til synd­anna. En um leið leyfir maður sér að vona að fólk finni hjá sjálfu sér hvað það hefur gert og hvernig beri að bregð­ast við,“ segir Guðni.

Auglýsing

Við­talið við Guðna var tekið á föstu­dag­inn, áður en til­kynnt var að Gunnar Bragi og Berg­þór væru farnir í leyfi og að búið væri að reka þá Karl Gauta og Ólaf úr Flokki fólks­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent