Á milli 74 og 91 prósent Íslendinga eru hlynnt afsögn alþingismannanna sex í kjölfar umdeildra samskipta sem hljóðritaðar voru þann 20. nóvember síðastliðinn. Flestum finnst að Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Miðflokksins eigi að segja af sér en næstum jafn háu hlutfalli finnst að Bergþór Ólason eigi einnig að gera það.
Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu.
Rétt innan við þremur af hverjum fjórum finnst að Anna Kolbrún Árnadóttir, einnig þingmaður Miðflokksins, eigi að segja af sér þingmennsku en það er lægsta hlutfallið. Það er því ljóst að í öllum tilvikum finnst miklum meirihluta landsmanna að þingmennirnir ættu að hverfa til annarra starfa.
Í öllum tilvikum eru konur hlynntari afsögn þingmannanna en karlar. Þeir sem eru eldri en 50 ára eru umburðarlyndari gagnvart því að þingmennirnir séu áfram á þingi því 8 til 16 prósent þeirra eru andvíg því að þeir segi af sér en 2 til 10 prósent í öðrum aldurshópum.
Langlægst hlutfall þeirra sem kusu Miðflokkinn í síðustu alþingiskosningum, þann 28. október á síðasta ári, kalla eftir afsögn sexmenningana.
Svarendur voru 1.311 talsins og komu úr Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks dreginn með tilviljun úr Þjóðskrá og svarar á netinu. Svarendur eru af báðum kynjum, alls staðarað af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð með tilliti til kyns, aldurs og búsetu. Könnunin fór fram dagana 30. nóvember - 3. desember 2018.