Birgir S. Bjarnason hefur sagt sig úr stjórn Símans og Mílu á meðan mál gegn honum eru til meðferðar fyrir dómstólum samkvæmt tilkynningu frá Símanum til kauphallar. Birgir var í haust ákærður af héraðssaksóknara fyrir stórfelld skattsvik, og segir í frétt mbl.is
Greint var frá því í nóvember að Birgi væri gefið að sök að hafa skotið tæplega 25 milljónum króna frá skatti við stjórn Íslensku umboðssölunnar hf., sem hætt hefur rekstri.
Birgir situr einnig í stjórn Félags atvinnurekenda, en hann er fyrrverandi formaður stjórnar félagsins. Hann hefur einnig vikið sæti þar, vegna málsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda.
Málið snýr að fyrirtækinu Íslenska umboðssalan hf. sem var í eigu Birgis en er nú hætt rekstri, að því er segir í frétt mbl.is.