Bogi Nils Bogason ráðinn forstjóri Icelandair Group

Group Stjórn Icelandair Group hefur gengið frá ráðningu Boga Nils Bogasonar í starf forstjóra fyrirtækisins.

Auglýsing
Bogi Nils Bogason
Bogi Nils Bogason

Group ­Stjórn Icelandair Group hefur gengið frá ráðn­ingu Boga Nils Boga­sonar í starf for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Bogi Nils hefur verið starf­andi for­stjóri Icelandair Group frá því í lok ágúst síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá félag­inu til kaup­hall­ar. 

Björgólfur Jóhanns­son, sem var for­stjóri Icelandair Group síð­ustu ár, hætti störfum hjá félag­inu í lok ágúst á þessu ári. 

Úlfar Stein­dórs­son, stjórn­ar­for­maður Icelandair Group, segir að þegar Björgólfur Jóhanns­son hafi látið af störfum hafi stjórn félags­ins hafið sam­stundis fag­legt ferli við leit að eft­ir­manni hans. „Capacent á Íslandi og alþjóð­lega ráðn­ing­ar­fyr­ir­tækið Spencer Stu­art aðstoð­uðu við leit­ina. Það kom skýrt fram í þessu ferli hversu virt og þekkt vöru­merki Icelandair er um allan heim og ánægju­legt að finna þann áhuga sem margir mjög hæfir ein­stak­ling­ar, bæði íslenskir og erlend­ir, sýndu starf­inu. Það var afdrátt­ar­laus nið­ur­staða stjórnar að Bogi Nils sé hæf­asti ein­stak­ling­ur­inn í starf­ið. Hann gjör­þekkir fyr­ir­tæk­ið, hefur skýra fram­tíð­ar­sýn og er vel til þess fall­inn að stýra því til móts við nýja tíma,“ segir hann. 

Auglýsing

„Það er mér mik­ill heiður að hafa verið beð­inn um að leiða þann frá­bæra hóp starfs­manna sem starfar hjá Icelandair Group. Við erum stolt af þeim sessi sem við skipum í hugum lands­manna og viljum standa undir því trausti sem okkur hefur verið sýnt í gegnum árin. Framundan eru bæði spenn­andi og krefj­andi tímar fyrir félag­ið, sem kalla á skýra fram­tíð­ar­sýn og hag­kvæman rekst­ur. Icelandair Group hefur styrkar stoðir sem byggt verður á til sóknar á næstu miss­erum,“ segir Bogi Nils. 

Í til­kynn­ing­unni kemur fram að Bogi Nils hafi gegnt stöðu fram­kvæmda­stjóra fjár­mála Icelandair Group frá októ­ber 2008. Áður hafi hann verið fram­kvæmda­stjóri fjár­mála hjá Askar Capi­tal 2007 til 2008 og fram­kvæmda­stjóri fjár­mála hjá Icelandic Group 2004 til 2006. Hann var end­ur­skoð­andi og með­eig­andi hjá KPMG á árunum 1993 til 2004.

Bogi Nils er fæddur árið 1969 og er við­skipta­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og lög­giltur end­ur­skoð­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent