Í skýrslu um uppbyggingu flugvallakerfisins á Íslandi og eflingu innanlandsflugs sem almenningssamgangna eru lagðar fram tillögur um að auka fjárhagslega sjálfbærni þeirra flugvalla, sem gegna hlutverki sem varaflugvellir í millilandaflugi, með því að skilgreina þá sem kerfi flugvalla með sameiginlegan kostnaðargrunn og Isavia ohf. falin fjárhagsleg ábyrgð á rekstri, viðhaldi og uppbyggingu þeirra. Þetta kemur fram í frétt samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.
Starfshópur sem hafði það hlutverk að móta tillögur um uppbyggingu flugvallakerfisins á Íslandi og eflingu innanlandsflugs sem almenningssamgangna hefur skilað skýrslu til Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Í skýrslunni eru gerðar tillögur um breytingar á fyrirkomulagi innanlandsflugs og rekstri flugvalla og að innanlandsflug verði hagkvæmur kostur fyrir íbúa landsbyggðarinnar.
Starfshópurinn kynnir meðal annars tillögur um hvernig jafna megi aðgengi landsmanna að þjónustu sem aðeins er í boði á suðvesturhorni landsins. Tillaga er gerð um að farmiðar íbúa með lögheimili á völdum svæðum á landsbyggðinni verði niðurgreiddir. Lagt er til að þeir sem búa í 200 til 300 kílómetra akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu fái 50 prósent af flugfargjöldum sínum til og frá svæðinu í einkaerindum niðurgreidd. Niðurgreiðslan nái að hámarki til fjögurra ferða fram og til baka á hvern einstakling á meðan reynsla kemst á kerfið.
Jafnframt er lagt til að þjónustugjöld verði samræmd á millilandaflugvöllunum og hóflegt þjónustugjald sett á til að standa straum af uppbyggingu vallanna. Slíkt gjald gæti orðið á bilinu 100 til 300 krónur á hvern fluglegg. Í frétt ráðuneytisins kemur fram að mikilvægi öryggishlutverks varaflugvalla tengt millilandaflugi hafi aukist og að starfshópurinn telji nauðsynlegt að taka tillit til breyttra aðstæðna á grundvelli þróunarinnar undanfarin ár.
Þá er lagt til að þjónustusamningur ríkisins við Isavia verði framvegis gerður til fimm ára í senn til svo að hægt verði að þróa flugvallakerfið til lengri tíma og stuðla að aukinni dreifingu ferðamanna.
Starfshópurinn leggur til að tillögurnar verði útfærðar nánar á næsta ári svo þær geti komið til framkvæmda árið 2020.