Leggja til að farmiðar íbúa með lögheimili á landsbyggðinni verði niðurgreiddir

Starfshópur sem hafði það hlutverk að móta tillögur um uppbyggingu flugvallakerfisins á Íslandi og eflingu innanlandsflugs sem almenningssamgangna hefur skilað skýrslu til Sigurðar Inga Jóhannssonar, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.

landhelgisgslan_14793338789_o.jpg
Auglýsing

Í skýrslu um upp­bygg­ingu flug­valla­kerf­is­ins á Íslandi og efl­ingu inn­an­lands­flugs sem almenn­ings­sam­gangna eru lagðar fram til­lögur um að auka fjár­hags­lega sjálf­bærni þeirra flug­valla, sem gegna hlut­verki sem vara­flug­vellir í milli­landa­flugi, með því að skil­greina þá sem kerfi flug­valla með sam­eig­in­legan kostn­að­ar­grunn og Isa­via ohf. falin fjár­hags­leg ábyrgð á rekstri, við­haldi og upp­bygg­ingu þeirra. Þetta kemur fram í frétt sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins. 

Starfs­hópur sem hafði það hlut­verk að móta til­lögur um upp­bygg­ingu flug­valla­kerf­is­ins á Íslandi og efl­ingu inn­an­lands­flugs sem almenn­ings­sam­gangna hefur skilað skýrslu til Sig­urðar Inga Jóhanns­son­ar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Í skýrsl­unni eru gerðar til­lögur um breyt­ingar á fyr­ir­komu­lagi inn­an­lands­flugs og rekstri flug­valla og að inn­an­lands­flug verði hag­kvæmur kostur fyrir íbúa lands­byggð­ar­inn­ar.

Starfs­hóp­ur­inn kynnir meðal ann­ars til­lögur um hvernig jafna megi aðgengi lands­manna að þjón­ustu sem aðeins er í boði á suð­vest­ur­horni lands­ins. Til­laga er gerð um að far­miðar íbúa með lög­heim­ili á völdum svæðum á lands­byggð­inni verði nið­ur­greidd­ir. Lagt er til að þeir sem búa í 200 til 300 kíló­metra akst­urs­fjar­lægð frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu fái 50 pró­sent af flug­far­gjöldum sínum til og frá svæð­inu í einka­er­indum nið­ur­greidd. Nið­ur­greiðslan nái að hámarki til fjög­urra ferða fram og til baka á hvern ein­stak­ling á meðan reynsla kemst á kerf­ið.

Auglýsing

Jafn­framt er lagt til að þjón­ustu­gjöld verði sam­ræmd á milli­landa­flug­völl­unum og hóf­legt þjón­ustu­gjald sett á til að standa straum af upp­bygg­ingu vall­anna. Slíkt gjald gæti orðið á bil­inu 100 til 300 krónur á hvern flug­legg. Í frétt ráðu­neyt­is­ins kemur fram að mik­il­vægi örygg­is­hlut­verks vara­flug­valla tengt milli­landa­flugi hafi auk­ist og að starfs­hóp­ur­inn telji nauð­syn­legt að taka til­lit til breyttra aðstæðna á grund­velli þró­un­ar­innar und­an­farin ár.

Þá er lagt til að þjón­ustu­samn­ingur rík­is­ins við Isa­via verði fram­vegis gerður til fimm ára í senn til svo að hægt verði að þróa flug­valla­kerfið til lengri tíma og stuðla að auk­inni dreif­ingu ferða­manna.

Starfs­hóp­ur­inn leggur til að til­lög­urnar verði útfærðar nánar á næsta ári svo þær geti komið til fram­kvæmda árið 2020.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent