Steingrímur segir að um mislestur hafi verið að ræða

Mál Önnu Kolbrúnar Árnadóttur þingmanns Miðflokksins hefur verið athugað og hefur hún í einu og öllu tilreitt réttar upplýsingar um sinn æviferil, samkvæmt forseta Alþingis.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Auglýsing

Stein­gríms J. Sig­fús­sonar for­seti Alþingis sagði við upp­haf þing­fundar í dag að mál Önnu Kol­brúnar Árna­dóttur þing­manns Mið­flokks­ins hefði verið athugað og að hún­ hefði í einu og öllu til­reitt réttar upp­lýs­ingar um sinn ævi­fer­il. 

„Ef athugað er hvernig þar er skráð er um mis­lestur að ræða þar sem því hefur verið haldið fram að hv. þing­maður hafi rang­lega titlað sig þroska­þjálfa. Svo er ekki. Í þeim tölu­lið þar sem hv. þing­maður til­greinir náms­feril sinn kemur skýrt fram að hún hefur háskóla­próf og önnur sér­fræði- og loka­próf á náms­ferl­inum eins og þar er til­greint sem og próf í upp­eld­is- og mennt­un­ar­fræðum með áherslu á sér­kennslu,“ sagði hann. 

Anna Kol­brún hefði hins vegar starfað sem þroska­þjálfi og fag­stjóri.

Auglýsing

„Varð­andi annað atriði sem einnig hefur verið gert að umtals­efni, að hv. þing­maður hafi haldið því rang­lega fram að hún hafi verið rit­stjóri Glæða, fag­tíma­rits sér­kenn­ara, skráði hv. þing­maður það ekki inn heldur hefði inn­skrán­ing skrif­stof­unnar mátt vera skýr­ari varð­andi það atriði og rétt­ara hefði verið að skrá að hv. þing­maður hefði verið í rit­stjórn. Það er ekki við hv. þing­mann að sakast.

Vonar for­seti að þar með sé það mál af heim­i,“ sagði Stein­grím­ur. 

Í frétt Kjarn­ans frá því í morgun kemur fram að Þroska­þjálfa­fé­lag Íslands hafi sagt Önnu Kol­brúnu Árna­dótt­ur, þing­mann Mið­flokks­ins, hafa rang­lega titlað sig sem þroska­þjálfa á vef Alþing­is. Félagið seg­ist hafa stað­fest­ingu frá Land­lækn­is­emb­ætt­inu þess efnis að Anna Kol­brún hafi hvorki hlotið menntun sem þroska­þjálfi né fengið starfs­leyfi frá emb­ætt­inu. Brotið hefur verið til­kynnt til Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

„Þroska­þjálfa­fé­lagið harmar að starfs­heitið þroska­þjálfi hafi verið mis­notað með þessum hætti enda þótt starfs­heitið sé ekki lengur að finna í ævi­á­gripi þing­manns­ins,“ segir í til­kynn­ingu frá Þroska­þjálfa­fé­lagi Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent