Anna Kolbrún ætlar ekki að segja af sér þingmennsku

Þingflokksformaður Miðflokksins tekur undir orð Sigmundar Davíðs um að selahljóðið hafi verið umhverfishljóð. Segir fordómana liggja hjá fréttamanninum sem skrifaði fyrstu fréttina um hljóðið.

Anna Kolbrún Árnadóttir.
Anna Kolbrún Árnadóttir.
Auglýsing

Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins og einn sex­menn­ing­anna sem var við­stödd niðr­andi sam­ræður um stjórn­mála­menn og annað nafn­greint fólk fyrir rúmum tveimur vik­um, ætlar ekki að segja af sér. Sam­ræð­urnar náð­ust á upp­töku. Þetta kemur fram í við­tali við hana í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir Anna Kol­brún að hún geri sér grein fyrir því að hafa látið sam­töl mann­anna við borðið við­gang­ast. „En á sama tíma geri ég mér fulla grein fyr­ir því að það er ekki á mína ábyrgð að stoppa það þegar drukkn­ir menn tala. Ég hefði átt að fara fyrr en ég gerði. Það eru al­­veg ótrú­­lega mörg „Ég hefð­i“.

Hún seg­ist ekki hafa verið drukkin heldur hafi hún drukkið tvo bjóra á löngum tíma þetta kvöld. Anna Kol­brún seg­ist enn fremur hafa verið fyrst af þing­mönnum Mið­flokks­ins til að yfir­gefa Klaust­ur­bar­inn þetta kvöld. „Mér fannst of mik­ill ákafi í mönn­um. Ég upp­lifði þetta þannig að ég hafi ítrekað reynt að skipta um umræðu­efni, án árang­urs. Ég reyndi að fara út í pæl­ingar um að við værum öll ólík og nefndi þar að stelpur væru oftar með talna­blindu og strákar oftar með les­blindu og því var snúið þannig af einum þeirra sem þarna var að þess vegna vissi kven­fólk ekki hvað það svæfi hjá mörg­um. Ég benti líka á það í þessum sam­ræð­um, þegar verið var að ræða útlit Írisar Róberts­dóttur [bæj­ar­stjóra í Vest­manna­eyj­u­m], hvort þeir myndu tala svona um karl en þá var þaggað niður í mér. Á ég að nenna að fara út í svona rök­ræður við fólk sem er undir áhrifum áfeng­is? Ég get ekki tekið ábyrgð á ann­arra manna orð­u­m.“

Auglýsing

Anna Kol­brún seg­ist ekki hafa grátið jafn­mikið á ævi sinni og síð­ustu daga og að hún hafi til að mynda brostið í frá á þing­flokks­for­manna­fundi í gær.

Hún tekur undir skýr­ingar Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, for­manns flokks henn­ar, að umdeilt og ætlað sela­hljóð, sem hljóm­aði á upp­tök­unni þegar þing­menn­irnir voru að ræða Freyju Har­alds­dótt­ur, hefði verið umhverf­is­hljóð. For­dóm­arnir liggi ekki hjá þeim heldur frétta­mann­inum sem skrif­aði fyrstu frétt­ina um hljóð­ið.„Hverjum datt í hug að velta fyrir sér hug­tak­inu selur og tengja það við Freyju Har­alds­dótt­ur? Hvaða for­dómum býr sá yfir sem skrif­aði fyrstu frétt­ina um það?“ spyr hún. Kom þetta hljóð úr barka ein­hvers ykkar þing­mann­anna? „Nei, ég veit ekki til þess.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent