Gylfi: Þjóðin skiptist í þá sem eru fastir í krónunni og þá sem geta farið úr henni

Prófessor í hagfræði skrifar ítarlega grein í Vísbendingu, þar sem fjallað er um stéttabaráttu nútímans og stöðu mála á Íslandi.

Gylfi Zoega
Auglýsing

„Í stað þess að íslenska þjóðin skipt­ist í fjár­magns­eig­endur og arð­rænt launa­fólk þá skipt­ist hún ann­ars vegar í þá sem geta farið inn í og út úr gjald­miðl­inum og hina sem eru fast­ir.“

Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, í ítar­legri grein sem kemur til áskrif­enda Vís­bend­ingar á morg­un. Í grein­inni, sem ber heitið Bylt­ing í krónu­land­i!, fjallar Gylfi um und­ir­stöður stétta­bar­átt­unnar og hvernig hún birt­ist í raun og veru á Ísland­i. 

Að hans mati liggur mun­ur­inn á hóp­unum innan íslenska hag­kerf­is­ins í því, að sumir geta farið úr „krónu­landi“ en aðrir ekki. „Í krónu­hag­kerfi þar sem fjár­magns­flutn­ingar á milli landa eru leyfðir er aðstöðu­munur á milli launa­fólks og fjár­magns­eig­enda. Dæmi­gerður launa­maður á fast­eign, skuldar fast­eigna­lán og safnar rétt­indum í líf­eyr­is­sjóði. Ef hann nú býst við því að gengi krón­unnar lækki þá áttar hann sig fljótt á a hann er fastur í krónu­hag­kerf­inu og getur fátt gert til þess að verja sig. Fjár­magns­eig­andi er í allt öðrum spor­um. Hann getur milli­fært pen­inga­legar eignir sínar á milli krón­unnar og ann­arra gjald­miðla. Þegar hann býst við að krónan falli þá kaupir hann gjald­eyri og þegar hann býst við því að hún hafi náð botni þá kemur hann aftur inn í krón­una og hagn­ast á geng­is­styrk­ingu henn­ar. Hann getur jafn­vel haft pen­inga­legar eignir sínar í erlendum böndum eða skatta­skjól­um.

Auglýsing

Af því sem hér hefur verið sagt má álykta að for­sendur hef­bund­innar stétta­bar­áttu séu ekki fyrir hendi hér á landi. Þjóðin skipt­ist ekki upp í fjár­magns­eig­endur sem arð­ræna launa­fólk í Marxískum skiln­ingi heldur skipt­ist þjóðin í tvo hópa, þá sem geta komið sér út úr krón­unni á réttum tíma og hina sem eru fast­ir.  Þetta hljómar ekki rétt­látt en svona er það sam­t,“ segir Gylfi í grein­inn­i. 

Í grein­inni segir jafn­framt, að harðar kjara­deilur - með hót­unum og stríðs­yf­ir­lýs­ingum - geti einar og sér valdið því að kjör almenn­ings skerð­ist

„Ímyndum okkur nú að verka­lýðs­leið­togar lýsi yfir stríði á hendur atvinnu­rek­endum og fjár­magns­eig­endum í því skyni að fá hærri kaup­mátt á kostnað þeirra síð­ar­nefndu. Þeir hóta verk­föll­um, t.d. skæru­verk­föllum sem geta lamað útflutn­ing um tíma, og hóta því að sýna meiri hörku en áður hefur sést á vinnu­mark­aði. Fjár­magns­eig­endum bregður í brún við að heyra þessi orð og eftir ekki langa umhugsun fara þeir inn í heima­banka sína og milli­færa pen­inga af krónu­reik­ingum á gjald­eyr­is­reikn­inga. Við­skipta­bankar reyna þá að kaupa gjald­eyri hver af öðrum og verð á gjald­eyri á milli­banka­mark­aði hækk­ar, gengi krón­unnar lækk­ar. Nú hækkar verð á öllum inn­flutn­ingi mælt í krónum og versl­anir munu fyrr en síðar hækka krónu­verð á inn­fluttum vörum sín­um. Kaup­máttur launa­fólks lækk­ar; það verður dýr­ara að kaupa bíla og heim­il­is­tæki og ferða­lögum til útlanda fækk­ar.

Hag­stofan mælir sömu­leiðis meiri verð­bólgu í kjöl­far geng­is­lækk­unar krón­unnar sem verður til þess að tölvu­kerfi við­skipta­bank­anna hækka höf­uð­stól verð­tryggðra fast­eigna­lána, nú skuldar launa­fólkið meira í krónum mælt. Verka­lýðs­leið­togar krefj­ast þess þá að þak sé sett á verð­trygg­inu til þess að lánin hækki ekki en slíkt þak yrði til þess að eignir líf­eyr­is­sjóð­anna sem fel­ast í verð­tryggðum útlánum rýrð­ust og hvati til sparn­aðar minnk­aði vegna nei­kvæðra raun­vaxta. Von­andi segði rík­is­stjórn nei við slíkum til­lög­um. Vextir á óverð­tryggðum lánum myndu einnig hækka þótt engar vaxta­hækk­anir yrðu í Seðla­banka ein­fald­lega vegna þess að bank­arnir byggjust við meiri verð­bólgu.

Þannig geta hót­anir verka­lýðs­hreyf­ingar orðið til þess að skerða lífs­kjör launa­fólks áður en til kjara­samn­inga kem­ur. Til­raunir til stétta­bar­áttu, svo ekki sé talað um bylt­ingu, leiða til falls krón­unn­ar, minni kaup­máttar launa og auk­innar mis­skipt­ingar eigna. Þetta er hið járn­harða lög­mál sam­tím­ans.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent