Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar telur að vegna framgöngu sinnar og viðbragða séu þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins rúnir trausti.
„Óskandi væri að þeir settu virðingu Alþingis og traust á stjórnmálum í landinu ofar eigin hag, og segðu af sér þingmennsku,“ segir í ályktun frá framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar.
Framkvæmdastjórnin fordæmir ummæli þingmanna sem féllu á veitingastaðnum Klaustri þriðjudagskvöldið 20. nóvember. Í ályktuninni segir að hegðun af þessu tagi sé engum sæmandi og allra síst kjörnum fulltrúum á Alþingi Íslendinga.
Afsökunarbeiðnir þingmanna einkennst af undanbrögðum frekar en iðrun
Framkvæmdastjórnin segir það vandséð hvernig hægt sé að ætlast til þess að samstarfsfólk þingmanna á Alþingi vinni með þeim á ný. „Sárt er að verða vitni að samtali sem opinberar slíka mannfyrirlitningu. Vandséð er hvernig hægt sé að ætlast til þess að samstarfsfólk þingmannanna á Alþingi vinni með þeim á ný — ekki síst ef haft er í huga að afsökunarbeiðnir viðkomandi þingmanna hafa að mestu einkennst af undanbrögðum frekar en iðrun,“ segir í ályktuninni.
Bakslag í baráttu kvenna, fatlaðs fólks og hinsegin fólks
Í ályktunni segir að upptökurnar séu bakslag í jafnréttisbaráttu kynjanna, í baráttu kvenna, fatlaðs fólks og hinsegin fólks. „Það er grátlegt að jaðarsettir hópar þurfi að sitja undir slíkum árásum enn þann dag, sér í lagi af hálfu þeirra sem setja lög í landinu um réttinda þeirra og kjör.“
Að lokum segir í ályktuninni að Samfylkingin sé flokkur jafnaðarmanna og málsvari mannréttinda, jafnréttis og kvenfrelsis, og líti því á það sem hlutverk sitt að styðja við og valdefla þá hópa sem jaðarsettir eru í samfélaginu.