Óskandi að þingmenn settu traust á stjórnmálum ofar eigin hag

Framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar fordæmir ummæli Klausturs-þingmannanna og segir það óskandi að þingmenn settu virðingu Alþingis og traust á stjórnmálum ofar eigin hag og segðu af sér þingmennsku.

Auglýsing
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.
Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar.

Fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar telur að vegna fram­göngu sinnar og við­bragða séu þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins rúnir traust­i.  

„Ósk­andi væri að þeir settu virð­ingu Alþingis og traust á stjórn­málum í land­inu ofar eigin hag, og segðu af sér þing­mennsku,“ segir í ályktun frá fram­kvæmda­stjórn Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. 

Fram­kvæmda­stjórnin for­dæmir ummæli þing­manna sem féllu á veit­inga­staðnum Klaustri þriðju­dags­kvöldið 20. nóv­em­ber. Í álykt­un­inni segir að hegðun af þessu tagi sé engum sæm­andi og allra síst kjörnum full­trúum á Alþingi Íslend­inga.

Auglýsing

Afsök­un­ar­beiðnir þing­manna ein­kennst af und­an­brögðum frekar en iðrun

Fram­kvæmda­stjórnin segir það vand­séð hvernig hægt sé að ætl­ast til þess að ­sam­starfs­fólk ­þing­manna á Alþingi vinni með þeim á ný. „Sárt er að verða vitni að sam­tali sem opin­berar slíka mann­fyr­ir­litn­ingu. Vand­séð er hvernig hægt sé að ætl­ast til þess að sam­starfs­fólk þing­mann­anna á Alþingi vinni með þeim á ný — ekki síst ef haft er í huga að afsök­un­ar­beiðnir við­kom­andi þing­manna hafa að mestu ein­kennst af und­an­brögðum frekar en iðr­un,“ segir í álykt­un­inni.

Bakslag í bar­áttu kvenna, fatl­aðs fólks og hinsegin fólks

Í álykt­unni segir að upp­tök­urnar séu bakslag í jafn­rétt­is­bar­áttu kynj­anna, í bar­áttu kvenna, fatl­aðs fólks og hinsegin fólks. „Það er grát­legt að jað­ar­settir hópar þurfi að sitja undir slíkum árásum enn þann dag, sér í lagi af hálfu þeirra sem setja lög í land­inu um rétt­inda þeirra og kjör.“

Að lokum segir í álykt­un­inni að Sam­fylk­ingin sé flokkur jafn­að­ar­manna og málsvari mann­rétt­inda, jafn­réttis og kven­frels­is, og líti því á það sem hlut­verk sitt að styðja við og vald­efla þá hópa sem jað­ar­settir eru í sam­fé­lag­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent