Útgáfa hvítbókar um fjármálakerfið var aftur frestað í vikunni en til stóð að kynna hana fyrir helgi. Í tilkynningu frá Fjármála- og efnhagsráðuneytinu segir að kynning hvítbókarinnar hafi verið frestað til mánudags 10. desember. Samkvæmt fjármála- og efnahagsráðuneytinu hefur verkið tafist vegna þess að lokafrágangur hafi tekið lengri tíma en áætlað var og að mörg mál liggja fyrir þinginu og stefnir í langan þingfund.
Starfshópurinn sem vinnur að gerð hvítbókar um framtíðarsýn og stefnu fyrir fjármálakerfið átti upphaflega að skila skýrslunni fyrir 15. maí síðastliðinn en þau skil hafa tafist talsvert. Kjarninn greindi frá því í byrjun september að starfshópurinn hefði ekki hafið störf fyrr en í febrúar og því hafi ekki verið raunhæft að skila skýrslunni um miðjan maí. Hópurinn óskaði eftir umsögnum margra aðila og hafi þær síðustu borist í júlí. Í september stóð til að skýrslan myndi verða opinberuð í nóvember, síðan í fyrstu vikunni í desember en nú liggur fyrir að það verður á mánudaginn.
Hvítbókin verður stefnumótandi fyrir framtíð ríkisbankanna
Niðurstaða starfshópsins getur haft veruleg áhrif á næstu skref í þróun íslensks fjármálakerfis, enda á íslenska ríkið tvo af þremur stærstu bönkum landsins, Landsbankann og Íslandsbanka. Heimild hefur verið í fjárlögum til að selja allt að 30 prósent í Landsbankanum og allt hlutafé í Íslandsbanka. Ákvörðun um hvort og hvernig bankarnir verða seldir verður tekin á grundvelli hvítbókarinnar.
Ýmsir bíða því birtingu hennar með óþreyju, enda mikill áhugi víða að losa um eignarhald ríkisins á bönkunum. Páll Harðarson, forstjóri Kauphallar Íslands, sagði til að mynda í þættinum 21 á Hringbraut í nóvember að hún líti mjög til skráningu Íslandsbanka og Landsbankans á markað sem lykilþátta í því að tvöfalda markaðsvirði félaga sem skráð eru hérlendis.
Aukið traust á íslenskum fjármálamarkaði, aukið gagnsæi og fjármálastöðugleika
Kveðið var á um stofnun hópsins í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar þar sem lögð var áhersla á að stefnumarkandi ákvarðanir um fjármálakerfið verði teknar eftir umfjöllun Alþingis um framtíðarsýn fjármálakerfisins á Íslandi sem byggi á þessari hvítbók um efnið. Hvítbókin hafi að leiðarljósi aukið traust á íslenskum fjármálamarkaði, aukið gagnsæi og fjármálastöðugleika.
Lárus L. Blöndal hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður Bankasýslu ríkisins er formaður starfshópsins. Með honum í hópnum hafa verið Guðrún Ögmundsdóttir, forstöðumaður lausafjáráhættu og fjármálafyrirtækja hjá Seðlabanka Íslands, Guðjón Rúnarsson, lögmaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, hagfræðingur hjá Oliver Wyman í Svíþjóð og Sylvía K. Ólafsdóttir, deildarstjóri jarðvarmadeildar á orkusviði Landsvirkjunar. Sylvía hætti þátttöku í hópnum en við sæti hennar tók Arnór Sighvatsson, hagfræðingur og fyrrverandi aðstoðarseðlabankastjóri.