Hvítbók um fjármálakerfið frestað á ný

Til stóð að fjármálaráðuneytið kynnti hvít­bók­ um fjár­mála­kerfið fyrir helgi en henni hefur verið frestað fram á mánudag. Niðurstaða hvítbókarinnar gæti haft veruleg áhrif á hvernig hlutir ríkisins í Landsbankanum og Íslandsbanka verði seldir.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra
Auglýsing

Útgáfa hvít­­bókar um fjár­mála­kerfið var aftur frestað í vik­unni en til stóð að kynna hana fyrir helgi. Í til­kynn­ingu frá Fjár­mála- og efn­hags­ráðu­neyt­inu segir að kynn­ing hvít­bók­ar­innar hafi verið frestað til mánu­dags 10. des­em­ber. ­Sam­­kvæmt fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu hef­ur verkið taf­ist vegna þess að loka­frá­­gang­ur hafi tekið lengri tíma en áætlað var og að mörg mál liggja fyr­ir þing­inu og stefn­ir í lang­an þing­fund.

Starfs­hóp­ur­inn sem vinnur að gerð hvít­bókar um fram­tíð­ar­sýn og stefnu fyrir fjár­mála­kerfið átti upp­haf­lega að skila skýrsl­unni fyrir 15. maí síð­ast­lið­inn en þau skil hafa tafist tals­vert. Kjarn­inn ­greindi frá því í byrjun sept­­em­ber að starfs­hóp­­ur­inn hefði ekki hafið störf fyrr en í febr­­úar og því hafi ekki verið raun­hæft að skila skýrsl­unni um miðjan maí. Hóp­­ur­inn óskaði eftir umsögnum margra aðila og hafi þær síð­­­­­ustu borist í júlí. Í sept­­em­ber stóð til að skýrslan myndi verða opin­beruð í nóv­­em­ber, síðan í fyrstu vik­unni í des­em­ber en nú liggur fyrir að það verð­ur á mánu­dag­inn.

Auglýsing

Hvít­bókin verður stefn­u­­mót­andi fyrir fram­­tíð rík­­is­­bank­anna

N­ið­­ur­­staða starfs­hóps­ins getur haft veru­­leg áhrif á næstu skref í þróun íslensks fjár­­­mála­­kerf­is, enda á íslenska ríkið tvo af þremur stærstu bönkum lands­ins, Lands­­bank­ann og Íslands­­­banka. Heim­ild hefur verið í fjár­­lögum til að selja allt að 30 pró­­sent í Lands­­bank­­anum og allt hlutafé í Íslands­­­banka. Ákvörðun um hvort og hvernig bank­­arnir verða seldir verður tekin á grund­velli hvít­­bók­­ar­inn­­ar.

Ýmsir bíða því birt­ingu hennar með óþreyju, enda mik­ill áhugi víða að losa um eign­­ar­hald rík­­is­ins á bönk­­un­­um. Páll Harð­­ar­­son, for­­stjóri Kaup­hallar Íslands, sagði til að mynda í þætt­inum 21 á Hring­braut í nóv­em­ber að hún líti mjög til skrán­ingu Íslands­­­banka og Lands­­bank­ans á markað sem lyk­il­þátta í því að tvö­­falda mark­aðsvirði félaga sem skráð eru hér­­­lend­­is.

Aukið traust á íslenskum fjár­mála­mark­aði, aukið gagn­sæi og fjár­mála­stöð­ug­leika

Kveðið var á um stofnun hóps­ins í stjórn­­­­­­­ar­sátt­­­­mála rík­­­­is­­­­stjórn­­­­­­­ar­innar þar sem lögð var áhersla á að stefn­u­­­­mark­andi ákvarð­­­­anir um fjár­­­­­­­mála­­­­kerfið verði teknar eftir umfjöllun Alþingis um fram­­­­tíð­­­­ar­­­­sýn fjár­­­­­­­mála­­­­kerf­is­ins á Íslandi sem byggi á þess­­­­ari hvít­­­­bók um efn­ið. Hvít­­­­bókin hafi að leið­­­­ar­­­­ljósi aukið traust á íslenskum fjár­­­­­­­mála­­­­mark­aði, aukið gagn­­­­sæi og fjár­­­­­­­mála­­­­stöð­ug­­­­leika. 

Lárus L. Blön­dal hæsta­rétt­­­­ar­lög­­­­maður og stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­maður Banka­­­­sýslu rík­­­­is­ins er for­­­­maður starfs­hóps­ins. Með honum í hópnum hafa verið Guð­rún Ögmunds­dótt­ir, for­­­­stöð­u­­­­maður lausa­­­­fjár­­­­á­hættu og fjár­­­­­­­mála­­­­fyr­ir­tækja hjá Seðla­­­­banka Íslands, Guð­jón Rún­­­­­­­ar­s­­­­son, lög­­­­­­­maður og fyrr­ver­andi fram­­­­kvæmda­­­­stjóri Sam­­­­taka fjár­­­­­­­mála­­­­fyr­ir­tækja, Kristrún Tinna Gunn­­­­ar­s­dótt­ir, hag­fræð­ingur hjá Oli­ver Wyman í Sví­­­­þjóð og Sylvía K. Ólafs­dótt­ir, deild­­­­ar­­­­stjóri jarð­varma­­­­deildar á orku­svið­i Lands­­­­virkj­un­­­­ar. Sylvía hætti þátt­­töku í hópnum en við sæti hennar tók Arnór Sig­hvats­­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi aðstoð­­­ar­­­seðla­­­banka­­­stjóri.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent