Uppljóstrarinn á Klaustri: „Ég varð bara svo sár og trúði varla því sem ég heyrði“

Bára Halldórsdóttir er konan sem tók upp samtöl þingmannanna sex á barnum Klaustur. Henni blöskraði svo að þarna væru valdamiklir menn samankomnir að „spúa hatri“ yfir minnihlutahópa á almannavettvangi að hún ákvað að taka samræður þeirra upp.

Forsíða Stundarinnar í dag
Auglýsing

„Ég er fötl­uð, hinsegin kona og mér blöskr­að­i,“ segir upp­ljóstr­ar­inn sem tók upp þing­menn­ina á Klaustur bar. Upp­ljóstr­ar­inn heitir Bára Hall­dórs­dóttir en hún var fyr­ir­ til­viljun stödd á Klaustur bar þann 20. nóv­em­ber þegar hún varð vitni að sam­ræð­u­m ­þing­mann­anna ­sex. Hún­ ­stígur fram og segir frá atburða­rásinni í við­tali við Stund­ina í dag. 

 „Mér bara brá svo þegar ég heyrði hvernig þing­menn­irnir töl­uðu. Satt best að segja trúði ég ekki mínum eigin skiln­ing­ar­vit­um. Svo ég byrj­aði bara að taka upp, án þess að hugsa það neitt lengra. En því meira sem ég hlust­aði, því reið­ari varð ég, því þarna voru saman komnir valda­miklir menn að spúa hatri yfir minni­hluta­hópa á almanna­vett­vangi. Ég held að það hafi verið rétt að upp­lýsa almenn­ing um það sem þarna fór fram og eftir á að hyggja er ég stolt af því,“ segir Bára. 

For­seti Alþingis hefur beðið fatl­aða, hinsegin fólk og konur afsök­unar á ummælum þing­manna en Bára til­heyrir öllum þremur hópunum.

Auglýsing

Er þetta í alvör­unni eðli­leg hegðun af hálfu þjóð­kjör­inna full­trú­a, ­þing­mann­anna okk­ar?

Bára var aðeins búin hafa kveikt á upp­tök­unni í smá stund þegar þing­menn­irnir fóru að tala um að „ríða ein­hverju skrokk­um“. Hún segir þau hafa verið stödd í opnu rými, á stað sem er opinn almenn­ing og að þau hafi talað svo hátt að það heyrð­ist um allt. „Ég hugs­aði með mér: Er þetta í alvör­unni eðli­leg hegðun af hálfu þjóð­kjör­inna full­trúa, þing­mann­anna okk­ar? Er þetta ekki akkúrat sú orð­ræða sem við erum nýbúin að vera að berj­ast gegn með­ ­MeToo og svo fram­veg­is, og er bara í lagi að valda­miklir menn sitji og tali svona, hátt og skýrt á kaffi­húsi eins og ekk­ert sé?“

„Helst lang­aði mig bara að standa upp og spyrja: Heyr­iði ekki í sjálfum ykk­ur? Vit­iði ekki að það er fleira fólk hérna inn­i?“ Bára spil­aði upp­tök­una fyrir kon­una sína þegar hún kom heim en hún var orð­laus. „Það sem okkur fannst svo ótrú­legt er að þau skyldu ná að pakka öllu þessu hatri og ógeði inn á aðeins örfáar klukku­stund­ir. Og á maður að trúa því að þetta hafi verið algert und­an­tekn­ing­ar­til­vik? Að venju­lega tali þau ekki svona? Að stefnan þeirra og póli­tíkin þeirra sé ótengd þessum við­horfum sem birt­ust þarna á barn­um?“

Ánægð með við­brögð almenn­ings, fjöl­miðla og stjórn­mála­manna 

Bára seg­ist vera ánægð með við­brögð almenn­ings, fjöl­miðla og stjórn­mála­manna við Klaust­urs­upp­tök­un­um. „Fólk tók þessu alvar­lega og sá þarna kýli sem það vildi stinga á. Þing­menn­irnir sem eiga í hlut hafa reyndar dregið málið á lang­inn með því að afneita vand­an­um, þræta og drepa mál­inu á dreif í stað þess að vera partur af lausn­inni. En það hefur verið ótrú­legt að fylgj­ast með við­brögð­un­um. Siða­nefnd Alþingis er kölluð til, fólk er rekið úr flokki og aðrir fara í frí, for­seti Alþingis biðst afsök­un­ar, alvöru umræður eiga sér stað og ég fer bara að hall­ast að því að þetta hafi verið dálítið þarf­t.“

Hún seg­ist vera stolt af því að hafa sett þessa ­at­burða­r­ás af stað og stolt af þing­mönn­um, almenn­ingi og bar­áttu­fólki sem hefur gripið tæki­færið til að breyta umræð­unn­i. „­Fólkið sem sat þarna á Klaustri er barn síns tíma að miklu leyti, en engu að síður þýðir þessi upp­á­koma og umræðan í kringum hana að næst þegar menn tala svona þá er lík­legra en áður að ein­hver segi stopp.“

Sjaldan séð þetta skiln­ings­leysi jafn skýrt

Í við­tal­inu við Stund­ina segir Bára einnig frá því hvernig það er að vera öryrki á Íslandi, til­heyra tveimur minni­hluta­hópum og mæta stöðugt skiln­ings­leysi valda­mik­illa afla í sam­fé­lag­in­u. Hún segir að sjaldan hafi þetta skiln­ings­leysi birst sér jafn skýrt og þegar hún hlust­aði á mál­flutn­ing þing­mann­anna á Klaustri. Bára er ­ör­yrki en hún glímir við gigt­ar­sjúk­dóm sem leggst á æða­kerf­i lík­am­ans. Und­an­farin ár hefur hún sinnt fræðslu og rétt­inda­bar­átt­u ­fyrir lang­veika, fátæka og fatl­aða í gegn­um ­fé­laga­sam­tök­in Tabú og Pepp. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent