Verður WOW air sýndarflugfélag?

Í flugiðnaði er oft rökrætt um hvað sé flugfélag og hvað sé flugmiðasölufyrirtæki, segir pistlahöfundur Forbes, þar sem hann veltir fyrir sér mögulegri aðkomu Indigo Partners að rekstri WOW air

Skúli Mogensen Mynd: WOW air
Auglýsing

Lík­legt er að Indigo Partners muni beita sér með þeim hætti, að WOW air leggi niður kostn­að­ar­söm flug og hag­ræði mikið í rekstri, meðal ann­ars með því að vera með starfs­fólk sem er með lág laun. 

Þá er spurn­ing hvort WOW air verði í reynd eins konar sýnd­ar­flug­fé­lag.

Þetta segir Samuel Eng­el, pistla­höf­undur For­bes á sviði flug­mála, þar sem hann veltir fyrir sér mögu­legri fjár­fest­ingu Indigo í WOW air, en við­ræður um þau standa enn yfir og ekki verið til lykta leidd­ar. 

Auglýsing

Í pistl­inum nefndir hann að sýnin sem Bill Franke, hinn 81 árs gamli stofn­andi og helsti eig­andi Indigo Partners, séu sú að skera niður kostnað eins og hægt er, vera með hag­kvæman flug­véla­flota, og vera síðan með góða sam­legð í rekstr­in­um. Þetta hafi verið gert með Wizz Air og Fronti­er, með góðum árangri. 

Með sýnda­flug­fé­lagi segir hann að átt sé við flug­fé­lag sem selji miða í gegnum gott vöru­merki, en síðan séu önnur félög sem fljúgi flug­félug­un­um. 

WOW air tap­aði 33,6 millj­­ónum dala, sem jafn­­­gildir um 4,2 millj­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á sama tíma­bili í fyrra nam tap félags­­ins 13,5 millj­­ónum dala, jafn­­virði tæp­­lega 1,7 millj­­arða króna miðað við núver­andi gengi. Þetta kemur fram í nýbirtu upp­­­gjöri flug­­­fé­lags­ins.

Tekjur WOW air námu 501,4 millj­­ónum dala, um 61,5 millj­­örðum króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og juk­ust um 31 pró­­sent frá sama tíma­bili í fyrra þegar þær voru 371,8 millj­­ónir dala.

EBITDA félags­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­ónir doll­­ara fyrstu níu mán­uði síð­­asta árs í að vera nei­­kvæð um 18,9 millj­­ónir nú, um 2,3 millj­­arða íslenskra króna.

Eins og komið hefur fram, þá féll Icelandair frá því að kaupa WOW air, og hófust fljót­lega við­ræður milli WOW air og Indigo Partners. Ekk­ert hefur verið gefið upp um við­ræð­urn­ar, annað en það sem komið hefur fram í stuttum yfir­lýs­ing­um, um að þær hafi gengið vel. 

Indigo er risi í flug­heim­in­um, og er með höf­uð­stöðvar í Arizona í Banda­ríkj­un­um. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent