Verið að undirbúa dómsmál á hendur Báru vegna Klausturupptöku

Konunni sem tók upp samtöl þingmanna Miðflokksins á Klausturbar hefur borist bréf frá héraðsdómi vegna beiðni um gagnaöflun. Þar segir að beiðnin verði „ekki skilin öðruvísi en svo að dómsmál kunni að verða höfðað á hendur þér“.

Bára Halldórsdóttir steig fram í síðasta tölublaði Stundarinnar.
Bára Halldórsdóttir steig fram í síðasta tölublaði Stundarinnar.
Auglýsing

Lög­maður fjög­urra ein­stak­linga, sem að öllum lík­indum eru fjórir þing­menn Mið­flokks­ins, hefur lagt fram beiðni um vitna­leiðslur og öflun sýni­legra sönn­un­ar­gagna fyrir dómi vegna upp­töku á sam­tölum sem áttu sér stað á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Beiðnin byggir á ákvæði laga um með­ferð einka­mála sem fjallar um öflun sönn­un­ar­gagna án þess að mál hafi verið höfð­að. Til­gangur þess er að koma í veg fyrir að mögu­leg sönn­un­ar­gögn spillist.

Hefst þá dans­inn...

Posted by Bára Hall­dórs­dóttir on Tues­day, Decem­ber 11, 2018

Þetta kemur fram í bréfi sem Báru Hall­dórs­dótt­ur, kon­unnar sem tók upp sam­ræður þing­mann­anna á Klaust­ur­barnum 20. nóv­em­ber, hefur borist frá hér­aðs­dóm­ara og Bára hefur birt á Face­book. Í stöðu­færslu með bréf­inu segir Bára: „Hefst þá dansinn“.

Í bréf­inu segir enn fremur að beiðnin verði „ekki skilin öðru­vísi en svo að dóms­mál kunni að verða höfðað á hendur þér í kjöl­far umbeð­innar gagna­öfl­un­ar.“

Auglýsing
Hún hefur því verið boðið í þing­hald vegna beiðn­innar sem fram fer í hér­aðs­dómi Reykja­víkur 17. des­em­ber næst­kom­andi, eða á mánu­dag í næstu viku.

Fengu sér lög­mann og höfðu sam­band við Per­sónu­vernd

Greint var frá því á RÚV í gær að þeir fjórir þing­menn Mið­flokks­ins sem voru teknir upp við að láta niðr­andi og nið­ur­lægj­andi ummæli falla um fjölda fólks á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber hefðu ráðið sér lög­mann. Sá hefði haft sam­band við Per­sónu­vernd og kraf­ist þess að stofnuni rann­sak­aði hver hefði staðið að því að taka upp sam­töl þing­mann­anna og komið upp­tök­unni til fjöl­miðla. 

Þing­menn­irnir fjórir eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður hans, Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, rit­ari flokks­ins, og Berg­þór Óla­son, þing­mað­ur.

Um sól­ar­hring eftir að beiðni lög­manns­ins barst Per­sónu­vernd gaf Bára Hall­dórs­dóttir sig fram í við­tali við Stund­ina og opin­ber­aði að hún væri sá ein­stak­lingur sem hefði tekið upp sam­töl­in.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent