Sanna lækkar laun sín til styrktar Maístjörnunni

Sósíalistar stofna sérstakan styrktarsjóð sem kallast Maístjarnan. Framkvæmdastjórn flokksins hefur ákveðið að setja framlag Reykjavíkurborgar til flokksins í sjóðinn. Sanna Magdalena ætlar að styrkja sjóðinn um 100 þúsund krónur á mánuði.

Sanna Magdalena Mörtudóttir
Auglýsing

Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, borg­ar­full­trúi sós­í­alista hefur ákveðið að styrkja Maí­stjörn­una um 100 þús­und krónur mán­að­ar­lega. Í til­kynn­ing­unni frá­ Sós­í­alista­fé­lag­i Ís­lands segir að með því lækki Sanna í raun laun sín sem borg­ar­full­trúi úr 908 þús­und krón­ur á mán­uði í um 750 þús­und krónur fyrir skatt. Það eru 2,5 föld lág­marks­laun.

„Mér finnst að við eigum að setja mörk á hæstu laun í sam­fé­lag­inu, hversu mikið hærri þau geti verið en lág­marks­laun,“ segir Sanna í til­kynn­ing­unni. „Mér finnst þre­föld lág­marks­laun algjört hámark, til dæmis fyrir borg­ar­stjóra, og setti launin mín því í þrep þar fyrir neð­an.“

Auglýsing

Hópar hinna verr settu geta sótt um stuðn­ing 

Maí­stjarnan er sér­stakur sjóður til styrk­ingar hags­muna­bar­áttu verr settra hópa og mun fram­kvæmda­stjórn Sós­í­alista­flokks­ins fara með rekstur sjóðs­ins og úthlut­anir úr hon­um. Fram­kvæmda­stjórnin hefur ákveðið að setja fram­lag Reykja­vík­ur­borgar til flokks­ins, um 900 þús­und krónur í Maí­stjörn­una.  Sam­kvæmt til­kynn­ing­unni má reikna með að á næsta ári verði fram­lagið tvö­falt hærra og á kjör­tíma­bil­inu renni um sjö millj­ónir króna úr borg­ar­sjóði til Maí­stjörn­unn­ar, í gegnum Sós­í­alista­flokk­inn. Fram­lag Sönnu til Maí­stjörn­unnar á kjör­tíma­bil­inu er metið á yfir fjórum millj­ónum króna.

Laufey Ólafs­dóttir gjald­keri fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins segir að hug­myndin sé að fólk sem til­heyrir hópum hinna verr settu í sam­fé­lag­inu geti sótt stuðn­ing til að greiða kostnað við upp­bygg­ingu bar­áttu­hópa, félaga eða sam­taka. „Ma­í­stjarnan mun veita skil­yrta styrki til að greiða útlagðan kostnað slíkra félaga, en ekki laun eða þókn­anir til stjórnar eða félags­manna. Það er alla vega ramm­inn til að byrja með. Verk­lag mun þró­ast í sam­starfi við þá hópa sem við vinnum með.“ segir Lauf­ey.

Maí­stjarnan borg­aði fyrir fund­inn 1. des­em­ber

Fyrsta verk­efni Maí­stjörn­unnar var að gang­ast í ábyrgð fyrir allan kostn­aði vegna úti­fund­ar­ins á Aust­ur­velli 1. des­em­ber síð­ast­lið­inn. Heild­ar­kostn­aður var um 140 þús­und krón­ur, Skilta­karl­arnir söfn­uðu í fötur um 106 þús­und krónur upp í kostn­að­inn á fund­inum og Maí­stjarnan mun borga mis­mun­inn, en til fund­ar­ins var boðað af þremur kon­um, Arn­dísi Jón­as­dótt­ur, Júlíu Sveins­dóttur og Alexöndru Krist­jönu Ægis­dótt­ur, sem ofbauð fram­koma þing­manna á Klaust­ur­barn­um.

Maí­stjarnan er fjár­mögnuð með styrkt­ar­fram­lagi Reykja­vík­ur­borgar til Sós­í­alista­flokks Íslands og fram­lögum og gjöfum ein­stak­linga. Í til­kynn­ing­unni segir að reynslan eigi eftir að leiða í ljós hvers kyns hópa, félög og sam­tök Maí­stjarnan styrk­ir.

Sanna Magda­lena hvetur að lokum alla sós­í­alista ­sem geta að leggja fé til Maí­stjörn­unn­ar.  „Mik­il­væg­ustu skrefin í átt að rétt­látu sam­fé­lagi er að þau sem mest líða undan órétt­læti kap­ít­al­ism­ans geti skipu­lagt sig, myndað sam­stöðu sín á milli og nái að byggja upp bar­áttu­tæki til að berj­ast fyrir hags­munum sín­um. Það eru mik­il­væg­ustu stjórn­mál­in, lífs­bar­átta þeirra sem kap­ít­al­ism­inn er að drepa.“ segir í til­kynn­ing­unni að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent