Stjórn Iceland Seafood International hefur ákveðið að félagið hefji undirbúning að skráningu á aðalmarkað Kauphallar Íslands á næsta ári.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá félaginu, en það hefur verið skráð á First North síðan í maí árið 2016.
Skráð félög á aðallista kauphallar Íslands eru nú 18 talsins.
Markmiðið með skráningu á aðallista er að breikka eigendahópinn og efla félagið. „Það er rökrétt skref fyrir félagið sem stækkað hefur mikið síðustu árin að hefja undirbúning á skráningu félagsins á aðalmarkað. Með því fjölgar í hópi hluthafa og á sama tíma styður það við áframhaldandi vöxt félagsins,“ segir Helgi Anton Eiríksson, forstjóri Iceland Seafood International, í tilkynningu.
Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta 2018 (e. normalized PBT for 2018) er áætlaður €6.8 milljónir evra til 7.3 milljónir evra, eða sem nemur allt að rúmlega milljarði króna. s
Hagnaður af reglulegri starfsemi á heilsársgrunni fyrir skatta 2018 (e. proforma normalised PBT for 2018) er áætlaður 10.4 milljónir evra til 10.9 milljónir evra, eða allt að 1,5 milljarðar króna.
„Okkar skýra stefna, góða starfsfólk og sterku samstarfsaðilar hafa lagt grunn að áframhaldandi kröftugum vexti félagsins,“ segir Helgi Anton í tilkynningu.