Miðflokkurinn segir að reynt hafi verið að nota þingnefnd í pólitískum tilgangi

Í yfirlýsingu segir að alltaf sé hægt að ná í Sigmund Davíð. Flokkurinn segist hafa stefnt uppljóstraranum í Klaustursmálinu fyrir dóm til skýrslutöku vegna þess að rétt „einstaklinga til friðhelgi ber alltaf að virða“.

sigmundur og gunnar bragi 9.10.2017
Auglýsing

Í yfir­lýs­ingu sem birst hefur á Face­book-­síðu Mið­flokks­ins kemur fram að for­maður og vara­for­maður flokks­ins, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Bragi Sveins­son, hafi ekki haft neina skyldu til að mæta á fund stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefndar í morg­un. „Það er afar fátítt að þing­nefndir séu not­aðar í jafn aug­ljósum póli­tískum til­gangi og átti að gera. Slíkt á ekki að við­gangast,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Menn­irnir tveir höfðu verið boð­aðir á fund nefnd­ar­innar til að ræða tal þeirra á Klaust­ur­bar þann 20. nóv­em­ber um meint póli­tísk hrossa­kaup við skipun sendi­herra. Í þeim hrossa­kaupum fólks, sam­kvæmt tali mann­anna, að Gunnar Bragi ætti inni greiða hjá Sjálf­stæð­is­flokknum fyrir að skipa Geir H. Haar­de, fyrr­ver­andi for­mann flokks­ins, sem sendi­herra í Was­hington. Þann greiða ætti hann að gera inn­kallað með því að fá sjálfur úthlutað sendi­herra­tign. Fyrir liggur að Sig­mundur Davíð fór á fund Bjarna Bene­dikts­son­ar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, og Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra til að ræða mögu­leik­ann á því að Gunnar Bragi yrði skip­aður sendi­herra. Allir menn­irnir fjórir áttu að koma fyrir opin fund í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd í morgun en ekk­ert varð af fund­inum þar sem hvorki Sig­mundur Davíð né Gunnar Bragi svör­uðu boð­unum á fund­inn. Í yfir­lýs­ing­unni seg­ir: „Varð­andi þær full­yrðingar sem komið hafa fram í fjöl­miðlum um að ekki hafi verið hægt að ná í for­mann okkar er sann­leik­ur­inn sá að alltaf er hægt að ná í Sig­mund Davíð af starfs­mönnum Alþingis eða koma boðum til hans. Svar við fund­ar­boði var til­búið en kl 17.00 var fund­ur­inn afboð­að­ur. Engin tíma­mörk voru höfð í fund­ar­boði. Það var vitað að hvert svo sem svarið hefði orðið hefði það lekið í fjöl­miðla nær sam­stund­is.“

Fund­ur­inn verður þess í stað haldin í jan­ú­ar.

Auglýsing

Í yfir­lýs­ingu Mið­flokks­ins er einnig fjallað um þá ákvörðun fjög­urra þing­manna flokks­ins um að láta Báru Hall­dórs­dótt­ur, sem tók tal þeirra upp, mæta fyrir dóm til skýrslu­töku. Þar segir að slík skýrslu­taka „yfir mann­eskju sem gerð­ist sek um eða tók á sig sök um hlerun er ein­ungis einn liður í nauð­syn­legri gagna­öfl­un. Við reiknum fast­lega með því að ýmis­legt eigi eftir að koma fram. Rétt ein­stak­linga til frið­helgi ber alltaf að virða og er það okkar helsti útgangs­punkt­ur. Ekki er búið að ákæra neinn og ekki að fara fram á bætur frá nein­um.“

Vegna umræðu í fjöl­miðlum er rétt að taka eft­ir­far­andi fram. Skýrslu­taka yfir mann­eskju sem gerð­ist sek um eða tók á sig...

Posted by Mið­flokk­ur­inn on Wed­nes­day, Decem­ber 12, 2018


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent