Siðfræðistofnun, rannsóknarstofnun sem heyrir undir Hugvísindastofnun Háskóla Íslands, verður stjórnvöldum til ráðgjafar í siðfræðilegum efnum tímabilið 1. janúar 2019 til 31. desember 2021. Þetta kemur fram í samstarfssamningi sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands og Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar rituðu undir í gær en frá þessu er greint í frétt forsætisráðuneytisins.
Stofnunin mun vinna með stjórnvöldum að eftirfylgni og innleiðingu tilmæla í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu, sem var birt í september síðastliðnum.
Samkvæmt samningnum getur hvert ráðuneyti einnig óskað eftir ráðgjöf Siðfræðistofnunar um einstök mál á sínu málefnasviði, þar með talið um fyrirhugaða lagasetningu. Þá geta Alþingi og stofnanir þess óskað eftir ráðgjöf Siðfræðistofnunar. Greiðslur úr ríkissjóði fyrir verkið munu nema 10 milljónum króna árlega.
Siðfræðistofnun Háskóla Íslands er rannsóknar-, fræðslu- og þjónustustofnun og er meðal annars vettvangur þverfaglegs samstarfs á sviði siðfræði.
Á vefsíðu stofnunarinnar kemur fram að hlutverk hennar sé að efla og samhæfa rannsóknir í siðfræði sem unnið er að við Háskóla Íslands, að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda háskóla og aðra rannsóknaraðila á sviði siðfræði, að gefa út fræðirit, námsefni og kynna niðurstöður rannsókna í siðfræði, að veita upplýsingar og ráðgjöf um siðfræðileg efni, að vera tengiliður við deildir vegna námskeiða sem samið er um að þær bjóði fram sem hluta af þverfaglegu námi í siðfræði einkum til meistaraprófs, að treysta samvinnu milli deilda í þágu þverfaglegs náms og efla skilning á þeim hagsmunum sem náminu tengjast, að sinna ýmsum verkefnum sem tengjast þróunarstarfi og að gangast fyrir námskeiðum, ráðstefnum og fyrirlestrum um siðfræði.
Siðfræðistofnun heyrir nú undir Hugvísindasvið og fær rekstrarfé frá sviðinu. Enn fremur segir á vefsíðu stofnunarinnar að mikilvægur hluti fjárhags stofnunarinnar sé sjálfsaflafé, þ.e. styrkir til sérstakra verkefna, svo sem til bókaútgáfu og ráðstefnuhalds.
„Stofnunin hefur á skrá velunnara og telur sá hópur nú um 400 manns. Velunnarar fá sent fréttabréf með upplýsingum um starfsemi stofnunarinnar, svo sem málþing, námskeið, fyrirlestra og fleira. Engin fjárútlát eða aðrar kvaðir fylgja því að vera velunnari,“ segir á vefsíðunni.
Stjórn Siðfræðistofnunar skipa þau Vilhjálmur Árnason, prófessor, tilnefndur af námsbraut í heimspeki, Sólveig Anna Bóasdóttir, tilnefnd af guðfræðideild, séra Elínborg Sturludóttir, tilnefnd af kirkjuráði þjóðkirkjunnar, Ástríður Stefánsdóttir, dósent, tilnefnd af Menntavísindasviði Haraldur Briem, læknir, skipaður af forseta Hugvísindasviðs án tilnefningar.