Félags- og jafnréttismálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, skipaði nýlega í tvö embætti innan væntanlegs nýs félagsmálaráðuneytis auk þess að skipa í embætti forstjóra Vinnueftirlits ríkisins. Bandalag háskólamanna hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem gagnrýnt er að þau störf hafi ekki verið auglýst. Í yfirlýsingunni segir að þótt tilteknar undantekningar frá auglýsingaskyldu geti átt rétt á sér í sérstökum tilvikum þá hafi of langt verið gengið í því að lögfesta slíkar undantekningar á síðustu árum á kostnað gagnsærrar stjórnsýslu.
Undantekningarheimildir draga úr gagnsæi í stjórnsýslunni
Í yfirlýsingu frá BHM segir að við ráðningu í áðurnefnd embætti hafi þau ekki verið auglýst laus til umsóknar heldur ráðherra nýtt heimild í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem segir að stjórnvald, sem skipað hefur mann í embætti, geti flutt hann í annað embætti sem undir stjórnvaldið heyrir og þurfi þá ekki að auglýsa það.
Bandalagið bendir á að auglýsingaskylda er meginregla við ráðningar í störfum hjá ríkinu. Auglýsingaskyldan er í samræmi við þá skyldu sem hvílir almennt á stjórnvöldum að gæta jafnræðis milli borgaranna og stuðla að því að ríkið hafi ávallt á að skipa sem hæfustu starfsfólki.
Í yfirlýsingu er lagt áherslu á að enda þótt tilteknar undantekningar frá auglýsingaskyldu geti átt rétt á sér í sérstökum tilvikum þá telji þau að of langt hafi verið gengið í því að lögfesta slíkar undantekningar á síðustu árum á kostnað gagnsærrar stjórnsýslu.
Gera kröfu á stjórnvöld um vandaða stjórnsýsluhætti
Í yfirlýsingunni segir að Bandalag háskólamanna geri kröfu til stjórnvalda um vandaða stjórnsýsluhætti við ráðningar í störf. „Þrátt fyrir að lög heimili annað þá eru það vandaðir stjórnsýsluhættir að auglýsa þegar til stendur að ráðstafa takmörkuðum gæðum, sem fyrirsjáanlegt er að færri geta fengið en vilja. Með auglýsingu er öllum sem áhuga hafa og uppfylla skilyrði gefið tækifæri á að sækja um. Að mati bandalagsins brjóta rúmar undantekningarheimildir við auglýsingar á lausum störfum hjá hinu opinbera í bága við jafnræðisreglur stjórnsýsluréttar ásamt því að draga úr gagnsæi í stjórnsýslunni.“