Kröfu þingmanna um gagnaöflun og vitnaleiðslur hafnað

Héraðsdómur hefur hafnað kröfu fjögurra þingmanna Miðflokksins um gagnaöflun og vitnaleiðslur fyrir Héraðsdómi vegna fyrirhugaðrar málssóknar gegn Báru Halldórsdóttur. Dómkirkjuprestur og skrifstofustjóri Alþingis verða því ekki kallaðir fyrir dóm.

Bára Halldórsdóttir með lögmönnum sínum 17. desember 2018
Bára Halldórsdóttir með lögmönnum sínum 17. desember 2018
Auglýsing

Kröfu fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins um gagna­öflun og vitna­leiðslur fyrir Hér­aðs­dómi vegna fyr­ir­hug­aðrar máls­sóknar gegn Báru Hall­dórs­dótt­ur, sem hljóð­rit­aði sam­skipti þeirra á Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, hefur verið hafn­að. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað upp dóm þess efnis rétt í þessu en Stundin greindi fyrst frá.

Kröfu um efni af eft­ir­lits­mynda­vélum hafnað

­Dóm­kirkju­prestur og skrif­stofu­stjóri Alþingis verða því ekki kall­aðir fyrir dóm vegna fyr­ir­hug­aðs mála­rekst­urs þing­manna gegn Báru líkt og Reim­ar Pét­urs­son, lög­maður fjór­menn­ing­anna, hafði óskað eft­ir. Einnig hafði verið kall­að eftir því að fyr­ir­svars­menn og starfs­menn Klaust­urs yrðu leiddir fyrir dóm til vitnis um manna­ferðir og aðstæður á barnum þann 20. nóv­em­ber. 

Reimar hafði einnig farið fram á að lagt yrði fyrir dóm myndefni af eft­ir­lits­­mynda­­vélum Alþingis og ­Dóm­kirkj­unn­ar ­sem myndi sanna hvernig brotið hefði verið gegn þing­­mönn­un­­um. Reimar sagði að með myndefn­inu ætti að vera hægt að sjá nákvæm­­lega hvernig Bára hefði haldið upp­­tök­unni leyndri fyrir þing­­mönn­unum og hvort ein­hverjir hefðu fram­­kvæmt brotið með henn­i. Þess­ari kröfu hefur nú verið hafnað líkt og kröf­unum um vitna­leiðslur hér fyrir ofan.

Auglýsing

Erindið liggur nú hjá Per­sónu­vernd

Ragn­ar Að­al­steins­son lög­maður Báru segir í sam­tali við Stund­ina að þau hafi frekar búist við þess­ari nið­ur­stöðu. Ragnar segir að erindið liggi nú hjá Per­sónu­vernd og að þing­menn­irnir fjórir hafa sagt að þeir ætli í einka­mál. Hann segir að þau bíði því bara og sjái hvert fram­haldið verð­i.  

Greint hefur verið frá því að fjórir þing­­menn Mið­­flokks­ins, þeir Sig­­mundur Davíð Gunn­laugs­­son, Gunnar Bragi Sveins­­son, Anna Kol­brún­­ Árna­dótt­ir og Berg­þór Óla­­son eru skráðir sókn­­ar­að­ilar á dag­­skrá Hér­­aðs­­dóms Reykja­vík­­­ur. Reimar Pét­­ur­s­­son, lög­­­maður þeirra, hefur sagt að þing­­menn­irnir fjórir hafi máls­höfðun til skoð­unar og að mark­miðið með vitna­­leiðslu­beiðni sé ein­falt, þeir vilji tryggja að sannað yrði hvernig brotið hefði verið gegn þeim. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent