Krónan styrkist og styrkist

Eftir snögga veikingu krónunnar í haust og fram í desember, hefur gengi krónunnar styrkst nokkuð hratt að undanförnu. Svo virðist sem áhyggjur af vanda í flugiðnaði séu nú mun minni en þær voru þegar vandi WOW air kom upp á yfirborðið.

króna
Auglýsing

Gengi krón­unnar hefur styrkst mikið að und­an­förnu, eftir snögga veik­ingu í haust og fram í byrjun des­em­ber. Banda­ríkja­dalur kost­aði rúm­lega 125 krónur fyrr í mán­uð­in­um, en kostar nú 117 krón­ur. Evra var um tíma komin yfir 140 krónur en kostar nú rúm­lega 132 krón­ur. 

Svo virð­ist sem áhyggjur af því að mik­ill vandi myndi skap­ast í hag­kerf­inu, meðal ann­ars vegna fjár­hags­vanda flug­fé­lags­ins WOW air, hafi koðnað nið­ur. Yfir­lýs­ing Icelandair um að félagið muni auka fram­boð flug­sæta um meira en fjórð­ung á næstu miss­erum, hefur meðal ann­ars orðið til þess að slá á áhyggjur um mikil nei­kvæð marg­feld­is­á­hrif af sam­drætt­inum sem WOW air hefur þegar boð­að. 

Auglýsing


Ekki liggur enn fyrir nið­ur­staða í við­ræðum WOW air og Indigo Partners, um fjár­fest­ingu síð­ar­nefnda félags­ins í WOW air, en þegar hefur verið boð­aður umtals­verður sam­dráttur í starf­semi á næsta ári, sem jafn­gildir heim­sóknum erlendra ferða­manna til Íslands upp á um 180 til 290 þús­und manns á árs­grund­velli. 

Eins og hér sést, á mynd frá vefnum Keldunni, hefur gengi krónunnar styrkst mikið í dag.Und­ir­liggj­andi staða íslenska hag­kerf­is­ins er góð um þessar mund­ir, þrátt fyrir að verð­bólga hafi farið hækk­andi, og mælist nú 3,7 pró­sent, en verð­bólgu­mark­mið er 2,5 pró­sent. Við­var­andi við­skipta­af­gangur er af við­skiptum við útlönd og var hann 76,5 millj­arðar á þriðja árs­fjórð­ungi.

Olíu­verð hefur hrunið niður und­an­farnar vik­ur, sem kemur sér vel fyrir Ísland, þar sem það sparar þjóð­ar­bú­inu gjald­eyri og dregur úr verð­bólgu­þrýst­ingi. Tunnan af hrá­olíu kostar nú 45 Banda­ríkja­dali en ein­ungis eru um sjö vikur síðan hún kost­aði 85 Banda­ríkja­dali. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent