Fjölgun ferðamanna 5,5 prósent í fyrra

Verulega dregur úr aukningu ferðamanna í brottförum frá Keflavíkurflugvelli, miðað við síðustu ár.

Ferðamenn í Leifsstöð
Auglýsing

Brott­farir erlendra far­þega frá land­inu um Kefla­vík­ur­flug­völl voru 2,3 millj­ónir árið 2018 eða um 120.600 fleiri en árið 2017, sam­kvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu og Isa­via. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ferða­mála­stofu.

Aukn­ing milli ára nemur 5,5 pró­sent­um, en það er tölu­vert minni aukn­ing en hefur verið und­an­farin ár. 

Bandaríkjamenn eru langfjölmennastir, í komu ferðamanna til landsins.

Auglýsing

Fjölg­unin er minni en und­an­farin ár en hún var á bil­inu 24,1 pró­sent til 40,1 pró­sent milli ára á tíma­bil­inu 2013-2017.

Af ein­staka mark­aðs­svæðum voru brott­farir Norð­ur­-Am­er­ík­ana flestar eða um 794 þús­undir tals­ins og var mest fjölgun þaðan eða um 115 þús­und­ir. 

Fjölgun var í brott­förum erlendra far­þega milli ára 2017 til 2018 alla mán­uði árs­ins nema í apr­íl. Fjölg­unin var hlut­falls­lega mest í maí og sept­em­ber eða um 13 pró­sent en minnst í mars, júlí, ágúst, nóv­em­ber og des­em­ber eða á bil­inu 1,5 pró­sent til 3,7 pró­sent.

Ferða­mála­stofa áréttar að fjöldi brott­fara erlendra far­þega gefur vís­bend­ingu um þróun í komum ferða­manna til lands­ins. Til að álykta um breyt­ingar á umsvifum í ferða­þjón­ustu þarf að líta til fleiri mæli­kvarða s.s. fjölda gistinótta og útgjalda ferða­manna.

Af ein­staka þjóð­ernum voru flestar brott­farir árið 2018 til­komnar vegna Banda­ríkja­manna eða um 695 þús­undir tals­ins. Um er að ræða 20,5 pró­sent fleiri brott­farir Banda­ríkja­manna en árið 2017. Brott­farir Breta komu þar á eftir en þær mæld­ust um 298 þús­undir árið 2018 og voru 24.600 færri en 2017. Sam­tals voru brott­farir Banda­ríkja­manna og Breta 42,9 pró­sent af heild­ar­brott­för­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent