Tekin hefur verið sú ákvörðun að hætta útgáfu tímaritsins MAN sem gefið hefur verið út af útgáfufélaginu Mantra ehf. frá árinu 2013. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu hjá tímaritinu á Facebook í dag en undir hana skrifa Björk Eiðsdóttir ritstjóri blaðsins og Auður Húnfjörð framkvæmdastjóri útgáfunnar.
Í tilkynningu frá tímaritinu kemur fram að desember-tölublaðið, sem forsetafrúin Eliza Reid prýddi forsíðuna á, hafi verið síðasta tölublað útgáfunnar. „Það er auðvitað sárt að þurfa að hætta útgáfu þess sem að okkar mati hefur verið eitt vandaðasta tímarit landsins en sökum erfiðs rekstrarumhverfis sjáum við þá leið eina færa,“ segir Auður.
Félagið hefur verið rekið af henni ásamt Björk Eiðsdóttur ritstjóra tímaritsins. „Þó svo að tímaritið hafi fengið frábærar móttökur eru aðstæður til slíkrar útgáfu hér á landi, á þessum litla markaði, því miður nánast ómögulegar og fara síst batnandi. Við höfum frá degi eitt haft allt undir og reynt að láta reksturinn ganga upp, með því að vinna sjálfar allt það sem við gátum og skera niður þar sem hægt er án þess að það bitni á gæðum. Við alla vega reyndum allt sem við gátum og göngum að því leyti sáttar frá borði, þó svo að þetta sé ekki sársaukalaust,“ segir Björk.
Þær vilja koma á framfæri þakklæti til starfsfólks sem mörg hver hafi starfað fyrir útgáfuna frá fyrsta degi, dyggra lesenda og áskrifenda.
MAN HÆTTIR ÚTGÁFU! Við þökkum hjartanlega lesturinn, áhugann, áskriftirnar og stuðninginn undanfarin fimm ár. Án þessa...
Posted by MAN magasín on Monday, January 7, 2019