Áframhald á inngripum Seðlabankans

Seðlabanki Íslands hefur á undanförnum dögum verið að vinna gegn veikingu krónunnar með inngripum á gjaldeyrismarkaði.

losun-gjaldeyrishafta_17980606774_o.jpg
Auglýsing

Áfram­hald var á inn­gripum Seðla­bank­ans á gjald­eyr­is­mark­aði í dag, og greip hann þrí­vegis inn í við­skipti, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. 

Á síð­ustu þremur við­skipta­dögum hefur hann verið iðinn við að grípa inn í við­skipti, með gjald­eyr­is­kaup­um, til að vinna gegn veik­ingu krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­mynt­u­m. 

Meðal ástæðna fyrir þrýst­ingu á veik­ingu krón­unn­ar, er sala erlendra aðila á verð­bréfum og skulda­bréf­um, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Meðal þeirra erlendu aðila sem hefur verið að losa um stöður í fyrr­nefndum eigna­flokk­um, er fyr­ir­tækið Eaton Vance Mana­gement.

Auglýsing

Fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóðir Eaton Vance áttu rík­­is­skulda­bréf, lán, íslensk hluta­bréf og kröfur á íslensk félög fyrir sam­an­lagt lið­­lega 67 millj­­örðum króna í lok júlí­mán­aðar á þessu ári. ­­Fyr­ir­tækið er umsvifa­­mesti erlendi fjár­­­fest­ir­inn hér á landi og er í hópi tutt­ugu stærstu hlut­hafa í fjöl­­mörgum skráðum félög­­um. Frá þessu var greint í Mark­að­inum

https://www.fretta­bla­did.is/­marka­dur­inn/hatt-i-­sjoeti­u-millj­ara-fjar­fest­ing-eaton-vance

, fylg­i­­riti Frétta­­blaðs­ins, í nóv­em­ber. Af þess­ari heild­ar­tölu voru um 30 millj­arðar í óverð­tryggðum skulda­bréf­um.

Gengi krón­unnar hefur veikst nokkuð að und­an­förnu, en í dag veikt­ist krónan um 0,67 pró­sent gagn­vart evru og 0,87 pró­sent Banda­ríkja­dal, þrátt fyrir ítrekuð inn­grip seðla­bank­ans. 

Evra kostar nú 136,5 krónur og Banda­ríkja­dalur tæp­lega 120 krón­ur. 

Seðla­bank­inn hefur ekki upp­lýst um umfang inn­grip­anna, það er upp á hversu mikið þau voru í hvert skipti. Með inn­gripum á markað reynir bank­inn að koma meiri stöð­ug­leika á gjald­eyr­is­mark­aði, með það að mar­miði að vernda geng­is­stöð­ug­leika og stöð­ug­leika í hag­kerf­in­u. 

Verð­bólga hefur farið nokkuð hækk­andi að und­an­förnu, og mælist nú 3,7 pró­sent, en verð­bólgu­mark­miðið er 2,5 pró­sent. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent